Fyrirfram mátti búast við enn einu einvígi Ásmundar Ernis Snorrasonar á Hlökk frá Strandarhöfði og Jakobs Svavars Sigurðssonar á Skarpi frá Kýrholti, en þeir hafa marga hildina háð á þessum vettvangi, síðast á Íslandsmóti í hestaíþróttum fyrir skemmstu þar sem Jakob hafði betur. Báðir áttu þeir frábærar sýningar í töltinu, Jakob fékk 8,77, sem telst mjög góð einkunn í tölti, en Ásmundur Ernir og Hlökk áttu stórbrotna sýningu og uppskáru í einkunn 9,37, þar af 10 frá einum dómara fyrir hægt tölt og 10 frá tveimur dómurum fyrir greitt tölt. Aðspurður segir Ásmundur hryssuna einstaka og tilfinningin í brautinni í gær hafi verið ólýsanleg. Hann óttast ekki samkeppnina í úrslitunum og segir þá Jakob vini þrátt fyrir að takast á inni á keppnisvellinum. A-úrslit í tölti fara fram á föstudagskvöld og eru einn af hápunktum mótsins. Allar niðurstöður landsmótsins má finna í smáforritinu HorseDay og beinar útsendingar frá öllum þáttum mótsins er að finna fyrir áskrifendur hjá Eiðfaxa TV.