Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sérsveitir æfðu með varðskipsmönnum á Faxaflóa

  • What: Special forces and coast guard conduct joint exercise
  • Impact: Enhances coordination between security agencies
Read Full Article →

Áhöfnin á varðskipinu Þór, sérsveit ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar héldu sameiginlega æfingu á Faxaflóa í gær. Þetta kemur fram á Facebooksíðu Landhelgisgæslunnar. Þar segir að æfingin hafi verið hefðbundin og að Landhelgisgæslan og embætti ríkislögreglustjóra standi reglulega fyrir sameiginlegum æfingum, bæði á sjó og á landi. Prófuðu nýja aðgerðabáta „Á æfingunni í gær gafst tækifæri til að prófa nýja aðgerðabáta sem nýst geta við uppgönguæfingar og liðsflutninga á sjó. Bátarnir sem bera nöfnin Týr og Ægir eru öflugir og voru afhentir fyrr í sumar. Æfingin gekk afar vel og var mikilvægur liður í að samhæfa aðgerðir embættis ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar á sjó,“ segir í færslunni á Facebook. Mynd/LHG

Share this article