Spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson varð í dag þriðji Íslendingurinn til að tryggja sig í úrslit á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham og þar með er ljóst að Ísland mun eiga allavega þrjá keppendur meðal tólf bestu á mótinu. Áður höfðu sleggjukastararnir Hilmar Örn Jónsson endað í 7. sæti og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir í 12. sæti á EM í ár. Svo margir Íslendingar hafa ekki komist í hóp tólf bestu á stórmóti utanhúss í frjálsíþróttum í 28 ár. Guðrún, Jón Arnar og Vala Flosa síðast Síðast komust þrír Íslendingar í topp 12 á EM árið 1998 í Búdapest. Jón Arnar Magnússon varð þá fjórði í tugþraut, Guðrún Arnardóttir sömuleiðis í 4. sæti í 400 m grindahlaupi og Vala Flosadóttir í 9. sæti í stangarstökkskeppninni. Þá hafði Ísland ekki átt jafn marga keppendur í fremstu röð síðan á Evrópumótinu í Brussel árið 1950 þar sem fræknasta frammistaða Íslendinga á stórmóti í frjálsíþróttum hefur náðst. Erfitt að toppa EM 1950 í Brussel Þar urðu Gunnar Huseby Evrópumeistari í kúluvarpi, Torfi Bryngeirsson í langstökki, Örn Clausen vann til silfurverðlauna í þríþraut og Guðmundur Lárusson varð fjórði í 400 m hlaupi, Haukur Clausen fimmti í 100 m hlaupi, Ásmundur Bjarnason fimmti í 200 m hlaupi og 4x100 m boðhlaupssveit Íslands með Guðmund, Hauk, Ásmund og Finnbjörn Þorvaldsson innanborðs varð einnig í fimmta sæti. Í Brussel árið 1950 varð Gunnar einnig í 11. sæti í kringlukasti, Finnbjörn í 11. sæti í 100 m hlaupi og Jóel Sigurðsson í 12. sæti spjótkastskeppninnar. Árangur Íslands á EM árið 1950 verður því seint toppaður. Bæst getur í hópinn í Birmingham Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í úrslitum spjótkastskeppninnar á laugardagskvöld og þá hleypur Baldvin Þór Magnússon einnig í beinum úrslitum 10.000 m hlaupsins. Hlynur Andrésson hleypur svo í beinum úrslitum maraþonhlaupsins í Birmingham á sunnudagsmorgun og getur því enn bæst í hóp Íslendinga meðal 12 efstu á erEvrópumótinu í ár.