Innlent | mbl | 7.7.2026 | 16:06 Eins og stærsta félagsheimili borgarinnar yrði lokað „Það sem dregur okkur kúnnana að er þessi góða aðstaða undir stúkunni.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Fastagestir í Laugardalslaug upplifa að félagsneti þeirra hafi verið kippt undan þeim eftir að fimm heitum pottum sunnan stúkumannvirkisins í Laugardalslaug og eimbaði laugarinnar var lokað um ófyrirséðan tíma. „Þetta er bara eins og stærsta félagsheimili í Reykjavík væri lokað skyndilega og skellt í lás. Þetta er bara skelfileg hegðun,“ segir Halldór Kristjánssen sem hefur vanið komur sínar í Laugardalslaug í 50 ár. Þar hefur hann hitt stóran hóp fólks daglega enda eru sundlaugar vinsæll samkomustaður fjölmargra og uppspretta félagslegra tengsla. Hann segir sig og aðra sundgesti vera gáttaða á vinnubrögðum borgarinnar í málinu. „Skelfileg hegðun“ Pottunum fimm og eimbaði laugarinnar var lokað af öryggisástæðum eftir að tekin var ákvörðun um að færa alla starfsemi úr stúkunni. Nýtt áhættumat stúkunnar sýnir að ástand stúkunnar sé bágborið vegna alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki. Stúkan í Laugardalslaug var reist árið 1968 en hefur verið lokuð almenningi undanfarin ár og aukið eftirlit verið með starfsemi hennar. „Þetta er bara skelfileg hegðun því það er ekkert að stúkunni. Hún stendur uppi og það er bara einhver laus múr. Ef það er einhver hætta á að stúkan sé að hrynja, af hverju setja þeir þá ekki stoðir undir eða fá iðnaðarmann til að koma og hreinsa upp þetta lausa?“ spyr Halldór. Frétt af mbl.is Loka fimm heitum pottum af öryggisástæðum Aðstaðan aðdráttarafl laugarinnar Halldór segir að hann hafi tamið sér komur í sundlaugina daglega um hádegisbilið. Undir venjulegum kringumstæðum séu rúmlega hundrað manns sem koma þangað í hádeginu. Nú séu færri í lauginni á þessum tíma dags. „Þetta er bara félagsleg einangrun,“ segir hann. Halldór segir helsta aðdráttarafl laugarinnar vera svæðið undir stúkunni þar sem sé að finna skjólgóða heita potta og eimbað. Nú séu hins vegar fáir pottar opnir og komast færri að í laugina. „Það sem dregur okkur kúnnana að er þessi góða aðstaða undir stúkunni, svo ekki sé minnst á það að ef þessi stúka yrði fjarlægð þá væri þetta ekki sama sundlaug vegna þess að þetta eru bestu skjólveggir á Íslandi.“ Aðspurður segir Halldór þá sundgesti sem hann hafi rætt við vera miður sín yfir núverandi fyrirkomulagi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Argentína - Egyptaland, staðan er 0:1 – Messi klúðraði aftur víti „Þetta er bara félagsleg einangrun“ Rússar mega aftur vera með Myndskeið: Belgía valtaði yfir Bandaríkin Trump enn með augun á Grænlandi Umræðan Íbúðakaup í Evrulandi Mætti ekki setja lög andstæð regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Getur tekið allt að sex mánuði að ljúka rannsókn Flóknara mál en gospellag um bjór Mest lesið Í gær Í vikunni Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings „Tæma lónið“ til að koma steypubílnum á þurrt Hringveginum lokað á morgun Margt á huldu um talsmann ríkisstjórnarinnar Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Nýjast á mbl.is » Argentína - Egyptaland, staðan er 0:1 – Messi klúðraði aftur víti „Þetta er bara félagsleg einangrun“ Rússar mega aftur vera með Myndskeið: Belgía valtaði yfir Bandaríkin Trump enn með augun á Grænlandi Umræðan Íbúðakaup í Evrulandi Mætti ekki setja lög andstæð regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Framkvæmdi húsleitir og lagði hald á 800 plöntur Bindur vonir við fundinn í Ankara Útgjöld til varnarmála nálgast 4% Mest lesið Í gær Í vikunni Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings „Tæma lónið“ til að koma steypubílnum á þurrt Hringveginum lokað á morgun Margt á huldu um talsmann ríkisstjórnarinnar Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk