Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samkeppni verði haldin um stúkuna

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.7.2026 | 12:15 Samkeppni verði haldin um stúkuna Stúkan við Laugardalslaug má muna sinn fífil fegri. mbl.is/Eggert Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Pétur Marteinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir tilefni til að endurmeta hlutverk stúkunnar við Laugardalslaug og jafnvel finna henni nýtt hlutverk. Tilefnið er annars vegar fréttir af fyrirhuguðu niðurrifi á hluta stúkunnar, vegna alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki, og hins vegar hugmyndir um að endurgera stúkuna eða jafnvel rífa hana og reisa í hennar stað hótel við laugina. Pétur þekkir vel til Laugardalsins, en hann vann að hugmyndum um endurgerð Laugardalsvallar sem verkefnastjóri hjá Borgarbrag. Ítarlega var fjallað um þær hugmyndir hér í blaðinu 27. janúar 2021. Starfaði við laugarnar „Maður fer í smá nostalgíufíling þegar stúkan við Laugardalslaug er annars vegar,“ segir Pétur og rifjar upp að hann hafi starfað í Laugardalslaug sem ungur maður. „Ég lít á þetta mannvirki sem hálfgert kennileiti fyrir Reykjavík og ákveðið tímabil og hugarfar. Bygging stúkunnar var stórhuga framkvæmd á sínum tíma og hún er falleg módernísk bygging. Hins vegar er hún kannski orðin barn síns tíma og hættuleg, enda hefur viðhaldi ekki verið sinnt sem skyldi. Því virðist vera komið að því að þurfa annaðhvort að verja miklum fjármunum til að láta hana gagnast áfram sem kennileiti eða koma henni í aðra nýtingu þannig að fleiri njóti góðs af.“ Spurður um þá hugmynd Björns Leifssonar, stofnanda World Class, að láta stúkuna víkja fyrir hóteli og byggja upp sundlaugagarð í Laugardalslauginni segir Pétur það góðra gjalda vert að einstaklingar leggi fram hugmyndir. Það sé hins vegar ekki hlutverk eigenda World Class að skipuleggja rými Reykjavíkurborgar. Þarf samráð við íbúa „Þetta þyrfti að fara í samkeppni en ég er opinn fyrir alls konar möguleikum í samráði við íbúa og þá sem hafa notað laugina lengi,“ segir Pétur. Sagt var frá hugmyndum Björns Leifssonar um sundlaugagarð í Morgunblaðinu 11. júlí. Svo var leitað viðbragða hjá Hildi Björnsdóttur borgarstjóra um tillöguna hér í blaðinu á þriðjudag en hún sagði að rýna þyrfti allar tillögur af yfirvegun. Loks var hér í blaðinu í gær fjallað um tillögu Orra Árnasonar, arkitekts hjá Zeppelin arkitektum, og samstarfsmanna um að endurbyggja stúkuna og finna henni ný not. Hefur mikið gildi Hjónin Dennis Davíð Jóhannesson og Hjördís Sigurgísladóttir, sem bæði eru arkitektar og reka stofuna Arkitektar Hjördís & Dennis, hafa snúið sér til Minjastofnunar vegna málsins. „Við hönnun stúkunnar notaði Einar Sveinsson arkitekt burðareiginleika steinsteypunnar til hins ýtrasta og skapaði sérstakt mannvirki sem hefur mikið byggingarsögulegt gildi og ber að varðveita að mínu mati. Ég tel að Minjastofnum Íslands ætti að skyndifriða mannvirkið en það er eina færa leiðin á þessu stigi málsins. Þá gefst tími til að taka afstöðu til þess hvort unnt sé að gera við hana, hugsanlega með breyttri notkun,“ segir Dennis, sem ólst upp á Teigunum og fylgdist með uppbyggingu Laugardalslaugar af miklum áhuga. Þeim hjónum sárnar að sjá stúkuna drabbast niður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » KA sækir stóran bita Samkeppni verði haldin um stúkuna Kosningasvindl og samsæri áberandi í ávarpi Trumps Fyrirliðinn tekur slaginn með West Ham í B-deildinni Þyrlan kölluð út að Landmannaleið Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Sparkvöllurinn rís ekki í bili Ekki hægt að breyta skráningunni Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Biðraðir á nýrri brú Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » KA sækir stóran bita Samkeppni verði haldin um stúkuna Kosningasvindl og samsæri áberandi í ávarpi Trumps Fyrirliðinn tekur slaginn með West Ham í B-deildinni Þyrlan kölluð út að Landmannaleið Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gamalt námsefni burðarás kennslunnar Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Staðan verri áður en skýrslan var unnin Ekki í mínum villtustu draumum Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Biðraðir á nýrri brú Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article