Netverslunin Boozt fagnar í næsta mánuði fimmtán ára afmæli. Á þessum fimmtán árum hefur fyrirtækið vaxið verulega, en til marks um það velti fyrirtækið yfir hundrað milljörðum íslenskra króna á síðasta ári. Hermann Haraldsson, sem hefur stýrt netversluninni frá árdögum hennar, segir þessi fimmtán ára hafa verið ævintýri líkust. „Þegar við vorum að fara af stað með fyrirtækið rákum við það úr lítilli íbúð í Malmö en í dag eru höfuðstöðvar þess staðsettar í miðri Kaupmannahöfn og starfsmennirnir orðnir rúmlega þúsund talsins. Okkur hefur tekist að byggja upp öfluga netverslun sem er með mikið úrval af vörum sem sterk eftirspurn er eftir.“ Boozt hóf innreið sína inn á íslenskan markað sumarið 2021 og kveðst Hermann mjög þakklátur fyrir hve duglegir Íslendingar hafa verið að nýta sér þjónustu netverslunarinnar allar götur síðan. „Tæplega helmingur allra Íslendinga hafa verslað hjá okkur. Íslenski markaðurinn hefur fest sig í sessi sem okkar sterkasti markaður ásamt Danmörku.“ Viðtökurnar séu ekki síður ánægjulegar í ljósi þess hve sterka tengingu Boozt hefur við Ísland. Hermann er fæddur og uppalinn á Íslandi en annar Íslendingur hefur einnig leikið lykilhlutverk í uppgangi Boozt. Jón Björnsson, forstjóri Veritas, hefur setið í stjórn fyrirtækisins frá árinu 2012. Hermann segir það mikla gæfu að hafa notið hans þekkingar og reynslu í öll þessi ár. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift