Netverslunin Boozt fagnar í næsta mánuði fimmtán ára afmæli. Á þessum fimmtán árum hefur fyrirtækið vaxið verulega, en til marks um það velti fyrirtækið yfir hundrað milljörðum íslenskra króna á síðasta ári. Hermann Haraldsson, sem hefur stýrt netversluninni frá árdögum hennar, segir þessi fimmtán ára hafa verið ævintýri líkust. „Þegar við vorum að fara af stað með fyrirtækið rákum við það úr lítilli íbúð í Malmö en í dag eru höfuðstöðvar þess staðsettar í miðri Kaupmannahöfn og starfsmennirnir orðnir rúmlega þúsund talsins. Okkur hefur tekist að byggja upp öfluga netverslun sem er með mikið úrval af vörum sem sterk eftirspurn er eftir.“ Boozt hóf innreið sína inn á íslenskan markað sumarið 2021 og kveðst Hermann mjög þakklátur fyrir hve duglegir Íslendingar hafa verið að nýta sér þjónustu netverslunarinnar allar götur síðan. „Tæplega helmingur allra Íslendinga hafa verslað hjá okkur. Íslenski markaðurinn hefur fest sig í sessi sem okkar sterkasti markaður ásamt Danmörku.“ Viðtökurnar séu ekki síður ánægjulegar í ljósi þess hve sterka tengingu Boozt hefur við Ísland. Hermann er fæddur og uppalinn á Íslandi en annar Íslendingur hefur einnig leikið lykilhlutverk í uppgangi Boozt. Jón Björnsson, forstjóri Veritas, hefur setið í stjórn fyrirtækisins frá árinu 2012. Hermann segir það mikla gæfu að hafa notið hans þekkingar og reynslu í öll þessi ár. Hraður vöxtur en svo hægði á „Við skilgreinum okkur sem vaxtarfyrirtæki og viljum því að fyrirtækið sé stöðugt að vaxa og styrkja enn frekar stöðu sína sem leiðandi netverslun á Norðurlöndunum,“ segir Hermann. Boozt gekk í gegnum hraðan vöxt í heimsfaraldrinum, en til marks um það jukust nettótekjur netverslunarinnar um rúmlega fjórðung árið 2020 og svo aftur um þriðjung ári síðar. Í kjölfarið fór að hægja á vextinum, meðal annars vegna samdráttar í netsölu eftir að sóttvarnaraðgerðum var aflétt. Auk þess drógu verðbólga og hærri vextir úr kaupgleði heimilanna, sérstaklega á Norðurlöndunum. Árið 2022 nam nettótekjuvöxtur Boozt 16% og var 15% árið 2023. Síðustu tvö ár hefur svo hægt verulega á og nettótekjuvöxtur verið undir væntingum. Þannig jukust nettótekjur netverslunarinnar um 6% árið 2024 og um 0,5% árið 2025. „Hagnaður fyrirtækisins var með ágætum á tímabilinu en vöxturinn olli vonbrigðum. Ef við heimfærum reksturinn yfir á fótbolta þá sækjum við alltaf til sigurs og sættum okkur ekki við jafntefli. Eins og kemur fram í uppgjöri fyrsta ársfjórðungs þá erum við núna að snúa vörn í sókn.“ segir Hermann. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .