Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Grænlendingar í góðum makríl í Smugunni

Read Full Article →

Grænlensku uppsjávarskipin Polar Amaroq og Polar Ammasaq hafa verið við góðar veiðar á makríl í Síldarsmugunni undanfarna daga. Þar er auk þess stór floti rússneskra skipa. Íslensk skip hafa ekki hafið veiðar, enda má segja að lítið liggi á þar sem kvótaniðurskurðurinn milli ára er mikill. Alþjóðahafrannsóknaráðið kynnti ráðgjöf sína síðastliðið haust fyrir veiðar á makríl. Lagður var til 70% samdráttur þannig að heildaraflinn færi úr 588 þúsund tonnum á síðasta ári í 174 þúsund tonn á þessu ári. Makríll hefur árum saman verið ofveiddur en í fyrsta sinn var Ísland þátttakandi í fjögurra ríkja samningi milli Bretlands, Noregs, Færeyja og Íslands. Samningi sem hefur verið gagnrýndur af íslenskri útgerð og sjómönnum. Þjóðirnar komu sér saman um að hámarksveiði á árinu verði 299 þúsund tonn, eða 72% umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Hlutur Íslands verður 10,5% eða 31.400 tonn en áður hafði verið miðað við 16,5% hlut. Niðurskurðurinn í makríl er líka verulegur fyrir Grænlendinga. Polar Amaroq og Polar Ammassat eru að veiðum í Síldarsmugunni þessa dagana. Geir Zoëga, skipstjóri á Polar Amaroq, segir í spjalli við Fiskifréttir að ágæt veiði sé á þessum slóðum. Geir var í afslöppun norður á Ströndum þaðan sem hann er upprunninn. Hann var nýkominn til landsins eftir að hafa landað um 1.200 tonnum af makríl í Færeyjum. Geir Zoëga skipstjóri á Polar Amaroq. „Við vorum í Smugunni og þarna er dálítið af fiski. Síðasti túr gaf okkur um tólf hundruð tonn. Það voru engin íslensk skip þarna enda úr litlum kvóta að moða. En þarna er fallegur makríll, 570-600 gramma fiskur. Við lönduðum í Færeyjum og munum gera það áfram,“ segir Geir.

Share this article