Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 860 tonn af makríl úr Smugunni. Gert er ráð fyrir að lokið verði við að vinna aflann í kvöld að því er segir á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn fékkst í þremur holum „Það er ekki annað hægt að segja en að veiðin hafi gengið vel. Aflinn fékkst í þremur holum. Við tókum tvö hol og síðan fengum við afla úr einu holi frá Vilhelm Þorsteinssyni EA. Það var ekki lengi dregið eða frá tæplega fjórum tímum og upp í tæplega sex tíma,“ segir Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri Barkar á svn.is. Fínasta veður hafi verið allan tímann á miðunum. Íslensk, grænlensk og rússnesk skip „Fiskurinn sem þarna fæst er hinn fallegasti og mest af honum er á bilinu 450 til 470 grömm að þyngd. Við vorum að veiðum alveg við norsku línuna um 400 mílur frá Norðfjarðarhorni. Það tók okkur um einn og hálfan sólarhring að sigla frá miðunum til Neskaupstaðar,“ segir Hjörvar. Þarna hafi verið allmörg skip að veiðum; íslensk, grænlensk og rússnesk. Rússarnir farnir að huga að síld „Rússarnir fullyrða að meira sé að sjá af makríl í Smugunni í ár en í fyrra og sum rússnesku skipanna eru búin með makrílkvótann sinn og farin að huga að síld. Ég held að menn séu bara mjög glaðir og hressir með upphaf þessarar makrílvertíðar enda byrjar veiðin ljómandi vel,” segir Hjörvar á vef Síldarvinnslunnar .