Kaupmáttur og ráðstöfunartekjur hafa aukist hraðar á Íslandi en í flestum ríkjum Evrópusambandsins á undanförnum árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Kontext, ráðgjafafyrirtæki Konráðs S. Guðjónssonar, vann fyrir Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) og Áfram Ísland í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi ESB-viðræður. Í skýrslunni kemur fram að kaupmáttur hafi vaxið hraðar hér á landi en í nær öllum ríkjum ESB síðustu tíu ár. Þar mælist Ísland með 3,8% meðalkaupmáttarvöxt á ári síðustu 10 ár á meðan meðalkaupmáttarvöxtur ESB-ríkja mælist 0,4% á ári á sama tímabili. Úr skýrslu Áfram Ísland. Aðeins nokkur fyrrverandi austantjaldsríki, sem búa við lægri lífskjör og eru í hraðari uppbyggingu, mælast með meiri kaupmáttaraukningu. Einnig hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila aukist meira á Íslandi en bæði í ESB og á Norðurlöndum. Þótt verðlag sé hátt í alþjóðlegum samanburði segir í skýrslunni að myndin breytist þegar tekið sé mið af ráðstöfunartekjum. Samkvæmt þeirri nálgun sé almennt verðlag hér um 28% lægra en meðaltal ESB-ríkja í hlutfalli við tekjur og matarkarfan 40% lægri en innan ESB. Á móti þessum styrkleikum er bent á að vaxtakostnaður heimila sé sá mesti í samanburðinum. Skýrslan rekur háa vexti til mikillar verðbólgu, hárra verðbólguvæntinga og launahækkana umfram framleiðnivöxt og segir að Ísland skeri sig úr í launahækkunum í alþjóðlegu samhengi. „Óþekkt er að verðlag sé stöðugt í ríkjum þar sem launahækkanir á framleidda einingu eru svipaðar og á Íslandi.“ Í skýrslunni er jafnframt bent á að Ísland sé betur í stakk búið en flest Evrópuríki til að takast á við öldrun samfélagsins vegna hagstæðrar aldurssamsetningar og fjármagnaðs lífeyriskerfis. Þá hafi samkeppnishæfni Íslands aukist á sama tíma og hún hafi almennt dalað í ESB-ríkjum. Áfram Ísland, sem hélt stofnfund í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll á mánudaginn, hefur opnað nýja vefsíðu, aframisland.is . Sjá einnig Beint: Upphafsfundur Áfram Ísland