Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.6.2026 | 7:35 Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Ef kaupmáttarhugtakinu er snúið við og verðlag skoðað í hlutfalli við ráðstöfunartekjur á mann birtist allt önnur mynd af stöðunni en þegar verðlagið er skoðað samhengislaust. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Fara fram á þingstubb í ágúst Hefur ekkert með ESB að gera Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ Sendiráðið bregst við brigslunum » Fleiri tengdar fréttir Mikið hefur verið rætt um matvælaverð á Íslandi í tengslum við hugsanlegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Verðlag á Íslandi er vissulega hátt, og þar með talið matvöruverð, en þegar verðlag er sett í samhengi við ráðstöfunartekjur kemur í ljós að verðlag Íslands er mun lægra en gengur og gerist innan ESB. 55% hærra en í ESB Rúv. sló í vikunni upp fyrirsögninni „Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB“ og byggir fréttina á svonefndu „umræðuskjali“ Samkeppniseftirlitsins (SKE). SKE segir matvöru aðeins dýrari í Sviss en á Íslandi, þar sem matvaran er 58% hærri en að meðallagi innan ESB. Í Noregi sé matvöruverð 32% yfir meðaltali, en þess má geta að hvorki Sviss né Noregur eru aðilar að Evrópusambandinu. Fram kemur að í ESB-löndunum Svíþjóð og Finnlandi sé verðið aftur á móti aðeins 6% yfir meðaltali. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra Viðreisnar veitti SKE 30 milljóna viðbótarframlag til að efla eftirlit á dagvörumarkaði og aflar SKE nú gagna til að kanna álagningu dagvöruverslana og birgja, og leita að samkeppnishindrunum sem kunna að hafa áhrif á matvöruverð. 40% lægra en í ESB Ef kaupmáttarhugtakinu er snúið við og verðlag skoðað í hlutfalli við ráðstöfunartekjur á mann birtist allt önnur mynd af stöðunni en þegar verðlagið er skoðað samhengislaust. Almennt verðlag á Íslandi í hlutfalli við ráðstöfunartekjur á mann er 28% lægra en innan landa ESB og gildir það sama um Noreg. Í Svíþjóð er almennt verðlag að teknu tilliti til ráðstöfunartekna aðeins 1% lægra en í ESB-löndum að jafnaði og í Finnlandi 4% lægra. Matarkarfan er í þessu samhengi 40% ódýrari á Íslandi og 30% ódýrari í Noregi en í ESB-löndum almennt, en hún er að jafnaði 15% ódýrari í Svíþjóð og 17% ódýrari í Finnlandi en í ESB-löndum almennt. Fatnaður og skór eru að teknu tilliti til ráðstöfunartekna einnig 40% ódýrari en gengur og gerist innan ESB, svipað og í Noregi þar sem verð þessa er 37% lægra en innan ESB. Svíþjóð og Finnland eru aftur á móti mun nær ESB-meðaltalinu, þar sem Svíþjóð er 3% ódýrari og Finnland 9%. Mestur er munurinn á rafmagni og hita í þessu samhengi, þar sem Ísland, Noregur og Lúxemborg skera sig úr með um og yfir 70% lægra verð en í ESB almennt. Verðlag í Svíþjóð er aftur á móti 22% lægra og í Finnlandi 33% lægra en í ESB. Flutningar, það er í neyslukörfunni fyrst og fremst eldsneyti, bílar og flug, eru 29% ódýrari hér en í löndum ESB að jafnaði, að teknu tilliti til ráðstöfunartekna. Í Noregi er munurinn 14% en í Svíþjóð er verðlag flutninga aftur á móti 16% hærra en í ESB-löndum almennt og í Finnlandi eru þeir 6% hærri. Hótel og veitingastaðir eru í þessu samhengi 30% ódýrari hér á landi en í ESB-löndum að jafnaði og í Noregi 25% ódýrari. Í Svíþjóð eru hótel og veitingastaðir 6% ódýrari en í ESB-löndum almennt og í Finnlandi 5% ódýrari. Gögnin benda sum sé sterkt til þess að Íslendingar séu fljótari að vinna sér inn fyrir matarkörfunni sem þessum mun nemur. Hvað segja gögnin? Morgunblaðið mun áfram fjalla um samanburð á Íslandi og Evrópusambandinu á grundvelli lífskjara og ýmissa hagstærða á næstu vikum, sem innlegg í upplýsta umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við ESB. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Fara fram á þingstubb í ágúst Hefur ekkert með ESB að gera Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ Sendiráðið bregst við brigslunum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Álverðið hefur rokið upp Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Nýjast á mbl.is » Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íhuguðu að kasta sér fram af brú Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi

Share this article