Mótið hófst sl. sunnudag og eru tæp þúsund hross og mörg hundruð knapar mætt til leiks. Leikar byrjuðu á svokallaðri sérstakri forkeppni í öllum flokkum, en 30 hæst dæmdu hross og knapar þar fara áfram í milliriðla sem fóru svo fram í gær og í dag. Viktoría Huld Hannesdóttir, titilverjandi í barnaflokki, er efst að loknum milliriðli á Þin frá Enni með 8.98 og efstur eftir milliriðla í unglingaflokki er Gabríel Liljendal Friðfinnsson á Ólsen frá Egilsá með 8.81. Í B flokki ungmenna eru það það Eik Elvarsdóttir og Valur frá Stangarlæk 1 sem leiða eftir milliriðla með 8,80 og í B flokki áhugamanna stendur efst að lokinni forkeppni Hátíð frá Narfastöðum sýnd af Freydísi Þóru Bergsdóttur með 8.59, en boðið er upp á keppni áhugamanna í fyrsta sinn á landsmóti í ár. Milliriðlum í B flokki gæðinga lauk í morgun, þar leiðir Kór frá Skálakoti, sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni með 8.96, en milliriðlum í A flokki lýkur í kvöld. Kynbótahrossin hafa líka skinið skært og nokkrar tíur litið dagsins ljós, auk þess sem heimsmet í einkunnagjöf var sett í gær - tvisvar. Tinni frá Árdal, sem sýndur var af Árna Birni Pálssyni í flokki fimm vetra stóðhesta fékk í aðaleinkunn 9,05, sem var um miðjan dag í gær hæsta aðaleinkunn sem gefinn hefur verið frá upphafi dóma, en nokkrum klukkustundum síðar mætti Safír frá Laugardælum í braut í flokki sjö vetra og eldri stóðhesta þar sem hann hlaut 9,13 sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni og heimsmetið slegið enn á ný. Yfirlitssýningar kynbótahrossa hafa staðið í allan dag og í kvöld fer hin sívinsæla töltkeppni fram þar sem 30 af bestu tölturum landsins mæta til leiks. Hægt er að sjá öll úrslit af landsmótinu í smáforritinu HorseDay.