Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2026 | 11:55 Hrefna frá Hemlu efst í flokki 4 vetra hryssna Vignir í Hemlu sýndi hryssuna sem er efst fjögurra vetra hryssna. Hún fékk 8,39 fyrir byggingu, 8,51 fyrir hæfileika og 8,47 í aðaleinkunn. Ljósmynd/Þórhildur Harpa Gunnarsdóttir Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Landsmót hestamannafélaga hófst í gær á Hólum í Hjaltadal með keppni í barna- og unglingaflokkum og B-flokki áhugamanna. Á kynbótavellinum voru fjögurra og fimm vetra hryssur sýndar. Efst í fjögurra vetra flokki er Hrefna frá Hemlu með 8,41 í aðaleinkunn, sem ræktandinn og eigandinn, Vignir Siggeirsson bóndi í Hemlu ll, sýndi. Vignir segir að ung hross sem komast í dóm fjögurra vetra séu í eðli sínu upplagsgóð. „Þessi hryssa virðist vera takmarkalaus og sama hvað maður biður um þá bætir hún bara í. Þarna fer saman ofboðslega gott geðslag og allar gangtegundir liggja auðveldlega fyrir henni. Hún hefur ekkert fyrir þessu, heldur er þetta bara uppbygging í rólegheitunum.“ Vignir segir að í byrjun tamningar hafi hún farið á brokki en allur gangur verið strax laus. „Ég er nú svo gamaldags að ég ríð mikið brokk en það er allt mjög opið í henni, eins og t.d. þegar ég prófaði skeiðið fyrst þá var eins og hún hefði aldrei gert annað.“ Hrefna er fjórði ættliður undan stofnhryssu Vignis og Lovísu í Hemlu, Gullbrá frá Kvíarhóli, sem er á bak við mjög mörg hross á Íslandi þar sem heiðursverðlaunahesturinn Skýr frá Skálakoti, faðir Hrefnu, er út af Gullbrá í þriðja lið og segir Vignir að hann hafi notað hann töluvert og hann skili vel í hóflegri skyldleikaræktun, bæði hvað varðar útlit og hæfileika. Móðir Hrefnu, Hrafndís frá Hemlu, var óhemjugóð hryssa að mati Vignis sem segir að ekki hafi verið hægt að sýna hana á fullum afköstum þar sem hún var slegin og slasaðist illa á fjórða vetri og segir Vignir að Hrefna sé mjög lík móður sinni. „Hún var ekki síðri en Hrefna en ég náði ekki að sýna hana í heilsteyptri sýningu þar sem hún slasaðist á beygjusin þannig að önnur afturlöppin hafði ekki fullan styrk.“ Stærsti lykillinn er heppni Yfirlitssýningin verður á fimmtudag og þar ræðst hvaða hryssur standa efstar, en næstu hryssur á eftir Hrefnu eru Þórkatla frá Feti, sem Viðar Ingólfsson sýnir, með einkunnina 8,37 og Tíbrá frá Eystri-Hóli, sýnd af Ævari Erni Guðjónssyni, með 8,32 í aðaleinkunn. Spurður hvaða ráð hann hafi fyrir fólk sem stundar hrossarækt segir Vignir: „Ég veit ekki hvað skal segja. Þetta eru margir lyklar og stærsti lykillinn er heppni. Ég met hrossin mín sjálfur og vel stóðhesta á merarnar sem ég tel að geti bætt það sem þarf að bæta. Minnsta málið í ræktun er að halda meri og fá folald, það er uppeldið og eftirfylgnin sem skiptir öllu máli. Það er ofsalega mikilvægt í hrossarækt að þekkja það sem maður er með. Þegar maður er búinn að vera í þessu svona lengi þá þekkir maður marga ættliði, ekki bara í eigin hrossum heldur líka í þeim stóðhestum sem maður notar og það eru mikil verðmæti í því.“ Sterkur barnaflokkur Í barnaflokki eru Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni efst, en þau keppa fyrir hestamannafélagið Geysi í Rangárvallasýslu, með 8,98 í einkunn. Í öðru sæti eru Eva Hrönn Ásmundsdóttir og Rafn frá Melabergi með 8,92 og í þriðja sæti eru Helga Rún Sigurðardóttir fyrir Geysi og Safír frá Mosfellsbæ, sem keppir fyrir Fák, með 8,80 í einkunn. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Hrefna frá Hemlu efst í flokki 4 vetra hryssna Vindhraði fór yfir 80 metra á sekúndu Hættur eftir sitt sjötta HM Rebekka teygir sig í stjörnur tvær Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ „Allt járn var orðið ryðgað“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Vilja ný tilboð í tröppurnar Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ „Allt járn var orðið ryðgað“ Var á göngu með syni sínum Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Ánægja með afturköllun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Hrefna frá Hemlu efst í flokki 4 vetra hryssna Vindhraði fór yfir 80 metra á sekúndu Hættur eftir sitt sjötta HM Rebekka teygir sig í stjörnur tvær Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Tók miklum breytingum: Rétt að staldra við Baðstemning á höfninni Leit að Miami-flugi jókst um 1.000 prósent Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Vilja ný tilboð í tröppurnar Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ „Allt járn var orðið ryðgað“ Var á göngu með syni sínum Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Ánægja með afturköllun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum