Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skráningum heldur áfram að fækka í London

Read Full Article →

Frumút­boðum í kaup­höllinni í London hefur fækkað veru­lega og ný félög sem koma inn á markaðinn ná engan veginn að vega upp á móti þeim félögum sem eru keypt af markaði eða hverfa þaðan. Sam­kvæmt Financial Times hefur virði yfir­töku­til­boða í félög sem skráð eru í Kaup­höllinni í London verið 27 sinnum meira en virði nýrra félaga sem hafa komið inn á markaðinn það sem af er ári. Þróunin eykur á áhyggjur af stöðu London sem alþjóð­legrar miðstöðvar fyrir hluta­fjár­mögnun. Aðeins sjö félög voru skráð í London á fyrri helmingi ársins og námu fjár­hæðirnar sem þau sóttu sam­tals 577 milljónum punda, sam­kvæmt tölum EY. Til saman­burðar voru 72 félög skráð á markað í Bandaríkjunum á sama tíma­bili og námu út­boðin sam­tals 128 milljörðum dala. Þar vó þyngst risastórt frumút­boð SpaceX. Vandinn snýst ekki aðeins um að fá ný félög heldur einnig um að er­lend yfir­tökufélög hafa sótt hart í bresk skráð félög. Af 324 milljörðum dala í sam­runum og yfir­tökum í Bret­landi það sem af er ári komu nærri 200 milljarðar dala til vegna er­lendra kaup­enda sem keyptu bresk félög eða eignir. Charles Hall, yfir­maður greiningar hjá Peel Hunt, segir ekki hægt að láta eins og inn­flæði nýrra félaga til London dugi til að vega upp á móti brott­hvarfi félaga af markaði. Hann kallar eftir skjótum að­gerðum til að snúa þróuninni við. Bresk stjórn­völd, eftir­lit­saðilar og kaup­höllin hafa reynt að styrkja stöðu markaðarins með því að ein­falda skráningar­reglur, meðal annars varðandi lág­marks­flot og upp­lýsinga­skyldu. Mark­miðið er að gera London sam­keppnis­hæfari gagn­vart Wall Street, þar sem markaðirnir eru dýpri, seljan­legri og laða að sér stærri út­boð. Stuðnings­menn Lundúna­markaðarins benda þó á að nokkur stór félög hafi verið til skoðunar fyrir skráningu í London á árinu, en að sum út­boð hafi tafist vegna ytri aðstæðna. Þar má nefna mögu­lega 19 milljarða evra skráningu hug­búnaðarfélagsins Visma og fyrir­hugað út­boð net­ferða­skrif­stofunnar Loveholi­da­ys, sem frestaðist meðal annars vegna óróa á mörkuðum. Mark Austin, með­eig­andi hjá Lat­ham & Wat­kins og nefndar­maður í breskum starfs­hópi um fjár­magns­markaði, segir að skráningar­um­hverfið í Bret­landi sé nú það sveigjan­legasta í Evrópu. Hann segir fregnir af dauða Lundúna­markaðarins stór­lega ýktar. Tölurnar sýna engu að síður að áskorunin er veru­leg. Heildar­markaðsvirði nýrra skráninga í London á árinu var aðeins 2,2 milljarðar punda og skýrist það að stórum hluta af skráningu hlutar í þjóðar­fjár­festingar­sjóði Úsbek­istan. Þróunin undir­strikar að London glímir ekki aðeins við tíma­bundna þurrð í frumút­boðum heldur dýpri sam­keppnis­vanda. Á sama tíma og bresk félög eru keypt af markaði hefur ekki myndast nægi­lega öflug röð nýrra skráninga til að endur­nýja markaðinn.

Share this article