Deila Umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins var gagnrýnt fyrir samhengisleysi, en í því var einungis að finna samanburð á verðlagi milli Íslands og annarra Evrópuríkja í tómarúmi og ekkert horft til áhrifa tekna og kaupmáttar eða afkomu dagvöruverslunar hér á landi. Að þessu leyti minnti umræðuskjalið á ljósmynd miðaldra hjóna af reikningi fyrir pizzu og bjór á kaffihúsi við „Laugaveginn“ á Tenerife sem birt er á samfélagsmiðlum með skilaboðum um hversu mikið þau undrast verðmuninn milli landa. Af þessu draga sérfræðingar Samkeppniseftirlitsins þá ályktun að samþjöppun, fákeppni og undanþágum frá samkeppnislögum sé um að kenna. Gengið á línuna Hagsmunaaðilum var gefinn kostur á að senda inn athugasemdir um umræðuskjalið fyrir lok júní og sendu bæði Samtök verslunar og þjónustu og Samtök atvinnulífsins inn umsagnir þar sem Samkeppniseftirlitið er gagnrýnt harðlega fyrir framsetningu sína. Rétt er að halda því til haga að umræðuskjalið er birt eftir að SKE þáði 30 milljóna króna fjárveitingu frá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra vegna sérstaks átaks ríkisstjórnarinnar til að koma böndum á verðbólguna. Auk umræðuskjalsins um dagvörumarkaðinn hefur SKE einnig sent sér sambærilegt skjal um eldsneytismarkaðinn og lesa má milli línanna í gögnum sem eftirlitið birti í tengslum við samrunaviðræður Arion og Kviku að fjármálageirinn sé næsta skotmarkið. Ganga má út frá því sem vísu að það umræðuskjal birtist áður en gengið verður þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðlögunarviðræðna við Evrópusambandið. Fullyrðingar sem stangast á raunveruleikann Umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins um dagvöruverð á Íslandi átti að marka upphaf víðtækrar athugunar á verðmyndun á íslenskum dagvörumarkaði. Í umsögnum tveggja stærstu hagsmunasamtaka atvinnulífsins er hins vegar dregið í efa að skjalið gefi traustan grunn að slíkri umræðu. Bæði Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu telja að framsetning eftirlitsins sé of einhliða og að hana skorti umfjöllun um mikilvæga þætti sem hafi áhrif á verðlag, allt frá launakostnaði og kaupmætti til tollverndar, skatta og smæðar markaðarins. Gagnrýnin beinist meðal annars að því að umræðuskjalið setji fram samanburð á verðlagi án þess að fjalla með sambærilegum hætti um þá kostnaðarþætti sem geta skýrt verðmun milli landa, svo sem launakostnað, flutningskostnað, smæð markaðarins og skattlagningu. Ef sú fullyrðing Samkeppniseftirlitsins að hátt vöruverð megi rekja til fákeppni og samþjöppunar stenst ætti það að endurspeglast í afkomu stærstu dagvörukeðjanna. Eins og segir í umsögn SVÞ benda gögn úr ársreikningum ekki til þess. SVÞ hafnar því að afkoma dagvöruverslana styðji þá ályktun að þær standi að baki háu matvöruverði. Samkvæmt samtökunum hefur hagnaður stærstu dagvöruverslana numið á bilinu 1,7–3% af tekjum frá árinu 2020 og afkoman frekar farið lækkandi þegar litið er lengra aftur í tímann. Þrátt fyrir að matvælaverð hafi hækkað verulega á sama tímabili hafi hagnaður verslananna ekki aukist í samræmi við það. Samtökin benda jafnframt á að kostnaðarsamsetning verslananna gefi skýrari mynd af verðmynduninni. Af hverjum 100 krónum sem neytendur greiði fyrir dagvöru fari um 79 krónur í innkaup á vörum og um 10 krónur í laun og annan starfsmannakostnað. Afgangurinn fari í annan rekstrarkostnað, afskriftir, fjármagnskostnað og skatta, þannig að þegar upp sé staðið standi eftir um tvær krónur í rekstrarafgang. Að mati SVÞ samræmist sú mynd illa þeirri hugmynd að óvenjuleg álagning í smásölu sé meginorsök hás matvöruverðs á Íslandi. Næstminnsta samþjöppunin á Norðurlöndum Í svari SVÞ kemur fram sú áhugaverða staðreynd að fyrr á þessu ári gaf norska ráðgjafarfyrirtækið Samfunnsøkonomisk Analyse samanburðarrannsókn á dagvörumarkaðnum á Norðurlöndum. Rannsóknin var unnin að beiðni Virke, hagsmunasamtaka fyrirtækja í verslunar- og þjónustugreinum í Noregi. Byggir rannsóknin meðal annars á gögnum frá öllum systurstofnunum SKE á hinum Norðurlöndunum en íslenska eftirlitið virðist hafa verið ómeðvitað um málið. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .