Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hornsteinn hagnast um 1,9 milljarða

Read Full Article →

Eignarhaldsfélagið Hornsteinn, móðurfélag BM Vallár og Björgunar-Sements, skilaði 1,9 milljarða króna hagnaði á árinu 2025, samanborið við 829 milljóna króna hagnaði árið áður. Eignasala hafði umtalsverð áhrif á afkomu ársins. Stjórn lagði til við aðalfund að ekki verði greiddur arður til hluthafa vegna rekstrarársins 2025, að því er segir í nýbirtum ársreikningi. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 12,6 milljörðum króna í fyrra, en þar af var hagnaður vegna sölu varanlegra rekstrarfjármuna rúmlega 1,3 milljarðar króna. Tekjur af aðalstarfsemi jókst um 0,6% milli ára og nam 11,1 milljarði króna. Rekstrargjöld drógust lítillega saman og námu 9,9 milljörðum króna. Fjöldi ársverka hjá samstæðunni var 195 á árinu 2025, en 210 árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam tæplega 2,7 milljörðum króna, samanborið við 1,3 milljarða árið áður. Eignir Eignarhaldsfélagsins Hornsteins voru bókfærðar á 11 milljarða króna í árslok 2025 og eigið fé var um 8,3 milljarðar. Eignarhaldsfélagið Hornsteinn er að 53% hluta í eigu þýska félagsins HeildelbergCement sem starfar í byggingar- og jarðefnaiðnaði á heimsvísu. Eftirstandandi 47% hlutur er svo í eigu Íslenskra jarðefna sem er í eigu íslenskra fjárfesta. Í skýrslu stjórnar segir að tekjuöflun BM Vallár hafi verið góð á síðasta ári en tekjur af aðalstarfsemi dótturfélagsins námu 8,6 milljörðum króna og jukust um 3,9% milli ára. Ný steypustöð á Reykjanesi var tekin í gagnið hjá BM Vallá undir lok síðasta árs og ný söludeild reist úr hringrásareiningum á höfuðstöðvum félagsins. „Fjárfestingarhreyfingarnar eru liður í endurstaðsetningaráformum B.M Vallá sem er yfirvofandi á næstu árum. Ötullega er unnið að þeim áformum íkjölfar samkomulags við Reykjavíkurborg þar að lútandi árið 2022. Viðræður þokast áfram við borgina um nýja lóð undir starfsemina og vonir standa til að ákvörðun um framtíðarstaðsetningu félagsins liggi fyrir síðar á þessu ári.“ Á síðasta ári sameinuðust tvö dótturfélög Hornsteins, þau Björgun ehf. og Sementsverksmiðjan ehf. Við samrunann var tekið upp nýtt nafn Björgun Sement ehf. „Á síðasta rekstrarári var tekjugrunnur sameinaðs félags sterkur og umsvif eftir því. Horfur fyrir næsta ár eru heilt yfir góðar en þó er viðbúið að samdráttar byrji að gæta eftir því sem líður á árið.“

Share this article