Þrír íslenskir kylfingar leika á Women's English Open mótinu þessa dagana í Manchester á LET Access mótaröðinni. Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í efsta sæti eftir frábæran annan hring. Ragnhildur er á 10 höggum undir pari og er jöfn hinni ensku Thaliu Martin í efsta sæti. Ragnhildur fór á sjö undir pari í dag og var með tvo skolla og alls níu fugla. Holl Ragnhildar hefur leik klukkan 09:20. Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru jafnar í 17. sæti á fjórum höggum undir pari. Þær léku á 69 höggum í dag. Sjö efstu fara í aðalmótaröðina - Íslendingarnir í ágætis stöðu Efstu sjö kylfingarnir að tímabili loknu komast inn á Ladies European Tour, stærstu mótaröð Evrópu. Hulda er efst Íslendinganna í sjötta sæti, Ragnhildur er í 10. sæti og Andrea er í 25. sæti.