Kylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir varð jöfn í þriðja sæti á Women’s English Open mótinu á LET Access mótaröðinni. Mótið er eitt af þeim stærri í mótaröðinni. Þær Ragnhildur, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru í harðri baráttu um efstu sjö sætin sem veita sæti í aðalmótaröðinni Ladies European Tour. Kylfingar fá stig fyrir mót tímabilsins. Ragnhildur fór á níu höggum undir pari og lék hringina þrjá á 69, 65 og 73 höggum. Hún var jöfn í efsta sæti fyrir lokahringinn og lék lokahringinn á einu höggi yfir pari. Hún fékk þrjá fugla á hringnum og tvo skolla auk eins tvöfalds skolla. Ragnhildur fer upp í áttunda sæti listans. Andrea og Hulda upp um sæti Andrea Bergsdóttir varð í 12. sæti á fimm höggum undir pari en hún lék hringina þrjá á 71, 69 og 71 höggi. Hún fór upp um sæti á stigalistanum og er nú jöfn í 24. sæti listans. Hulda Clara Gestsdóttir varð í 33. sæti á einu höggi undir pari í heildina. Hulda lék hringina á 71, 69 og 75 höggum. Hulda fer upp um sæti á stigalistanum og situr nú í fjórða sæti.