Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hulda Clara önnur íslenska konan til að vinna atvinnumót

Read Full Article →

Hulda Clara Gestsdóttir varð önnur íslenska konan til að vinna mót á LET Access-mótaröðinni í golfi. Hulda vann RB Czech Ladies Challenge-mótið í dag en þetta er hennar fjórða mót á mótaröðinni. Áður hafði Ragnhildur Kristinsdóttir ein náð þeim áfanga að vinna atvinnukylfingamót. Það gerði hún einnig á LET Access-mótaröðinni. Par, par, par Hulda lék Panorama Golf Resort-völlinn í Tékklandi á pari og sýndi í raun ótrúlegan stöðugleika. Yfir hringina þrjá fór hún á 72 höggum í þrígang og náði þremur fuglum til að núlla út þrjá skolla. Hulda var jöfn Ragnhildi Kristinsdóttur í 7. sæti eftir fyrsta hring en kleif hægt og rólega upp töfluna. Að lokum var hin svissneska Natalie Armbruester höggi á eftir henni. Hvað þýðir þetta? Hulda var á 24. sæti stigalista mótaraðarinnar en klifrar nú upp listann og er komin í 3. sæti. Ef hún heldur því sæti mun hún fá keppnisrétt á efsta stigi Evrópu. LET Access mótaröðin er skör neðar en efsta stig evrópska kvennagolfsins, sem er Ladies European Tour mótaröðin. Kylfingar fá þátttökurétt byggt á árangri sínum og síðustu ár hafa sex til sjö kylfingar fengið þátttökurétt í mótaröð þeirra bestu. Hulda er á sínu fyrsta keppnistímabili sem atvinnukylfingur og hafði áður hæst farið í 8. sæti á stigalistanum. Hvað með hina kylfingana? Tveir aðrir íslenskir kylfingar leika á mótaröðinni en alls eru 106 kylfingar að berjast um þessi fáu sæti sem veita þátttökurétt á LET. Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í 34. sæti á þrettán höggum yfir pari. Hún lék hringi sína á 72, 78 og 79 höggum. Ragnhildur hefur leikið gott golf í sumar og var fimmta á stigalistanum fyrir mótið. Ragnhildur er sem stendur í 7. sæti stigalista mótaraðarinnar og er því á mörkum þess að komast í mótaröð þeirra bestu. Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í 21. sæti á tíu höggum yfir pari. Hún lék hringina þrjá á 75, 78 og 73 höggum. Andrea er í 28. sæti á stigalistanum.

Share this article