Innlent | Morgunblaðið | 10.7.2026 | 6:00 Andlát: Bragi Hannesson Bragi Hannesson Setja bókamerki Bragi Hannesson fv. bankastjóri lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí, á 94. aldursári. Bragi fæddist 10. desember 1932 í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum. Foreldrar hans voru Hannes Pálsson, skipstjóri og síðar forstjóri Hampiðjunnar, og Ásdís Þorsteinsdóttir húsfreyja. Bragi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953, embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1958 og öðlaðist hdl.-réttindi 1959. Hann var framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna 1958-63 og jafnframt framkvæmdastjóri Meistarasambands byggingarmanna 1961-63, var bankastjóri Iðnaðarbanka Íslands hf. 1963-90 og forstjóri Iðnlánasjóðs 1990-98. Bragi sat í stjórn Orators og var ritstjóri Úlfljóts 1954-55, ritstjóri Tímarits iðnaðarmanna 1958-63, var varaformaður Heimdallar 1955-56, sat í stjórn SUS 1956-61, í stjórn Varðar 1966-71. Hann var í borgarstjórn 1966-70 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og átti sæti í stjórnum nokkurra borgarstofnana sama kjörtímabil. Bragi var endurskoðandi Iðnaðarbankans 1960-63, sat í framkvæmdastjórn Norræna iðnþróunarsjóðsins 1970-95 og var formaður hans 1970-79 og 1982-85 og formaður stjórnar Iðntæknistofnunar 1978-1980. Hann átti að auki sæti í stjórnum fjölmargra sjóða, stofnana og fyrirtækja, m.a. í stjórn Hampiðjunnar og Granda. Bragi naut tilsagnar í myndlist hjá Hring Jóhannessyni um árabil, hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis á árunum 1975-1993. Bragi var jafnframt mjög áhugasamur um skógrækt og var skógarbóndi á jörðinni Lækjarbrekku í Gnúpverjahreppi, sem hann festi kaup á árið 1999. Eiginkona Braga var Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 1933, d. 2020. Dætur þeirra eru Ragnheiður, prófessor emerita í lögfræði við Háskóla Íslands, f. 1956, Ásdís, textíl- og jógakennari, f. 1958, og Bryndís píanókennari, f. 1968. Barnabörnin eru sex og langafabörnin fimm. Útför Braga fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 16. júlí klukkan 13. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ölvaður undir stýri að horfa á HM í símanum Dregur úr vætunni Engin fordæmi um undanþágur Vísar hagsmunaárekstrum á bug Andlát: Bragi Hannesson Umræðan Ábyrgð og árangur í ríkisrekstri Kerfi sem skapar biðlista Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Meðallaunþeginn fer á mis við 15 milljónir Uppselt í flug austur í dag og hótel nær fullbókuð Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Samskipti Þorgerðar og Jettens ekki í yfirlitinu Talar gegn undanþágum fyrir Ísland Skipti um skoðun eftir fjórðu höfnunina Gerði dýrabúning úr dýnu frá Jysk Myndir: Góð stemning á Hólum Breytingin hefur styrkt stöðuna Telur varanlegar undanþágur útilokaðar Eins og að koma inn í lítið íslenskt samfélag Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Ölvaður undir stýri að horfa á HM í símanum Dregur úr vætunni Engin fordæmi um undanþágur Vísar hagsmunaárekstrum á bug Andlát: Bragi Hannesson Umræðan Ábyrgð og árangur í ríkisrekstri Kerfi sem skapar biðlista Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Vísar hagsmunaárekstrum á bug Sóttu kaldan og blautan ferðamann Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Samskipti Þorgerðar og Jettens ekki í yfirlitinu Talar gegn undanþágum fyrir Ísland Skipti um skoðun eftir fjórðu höfnunina Gerði dýrabúning úr dýnu frá Jysk Myndir: Góð stemning á Hólum Breytingin hefur styrkt stöðuna Telur varanlegar undanþágur útilokaðar Eins og að koma inn í lítið íslenskt samfélag Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“