Innlent | Morgunblaðið | 4.8.2026 | 6:00 Andlát: Heimir Hannesson Heimir Hannesson. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Heimir Hannesson, lögfræðingur, fyrrverandi formaður Ferðamálaráðs Íslands og stofnandi Iceland Review, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 30. júlí, níræður að aldri. Hann fæddist 10. júlí 1936 á Akureyri, sonur hjónanna Hannesar J. Magnússonar, skólastjóra og rithöfundar, og Sólveigar Einarsdóttur húsfreyju. Heimir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1955 og prófi frá lagadeild HÍ sem héraðsdómslögmaður 1963. Samhliða laganámi var Heimir blaðamaður á Tímanum og umsjónarmaður vinsælla útvarpsþátta um íslensk og erlend málefni. Heimir var virkur í stjórnmálum á yngri árum og varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi 1971-1978. Hann sat nokkur þing sem varamaður. Heimir var alla tíð stuðningsmaður samstarfs vestrænna lýðræðisríkja og aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Hann var meðal stofnenda Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu 1961 og síðar formaður félagsins. Hann tók virkan þátt í starfsemi Atlantic Treaty Association, samtökum áhugafólks um málefni Atlantshafsbandalagsins í einstökum aðildarríkjum. Árið 1963 stofnaði hann, ásamt Haraldi J. Hamar, tímaritið Iceland Review, í þeim tilgangi að miðla upplýsingum á ensku um íslensk málefni með áherslu á stjórnmál, menningararf og ferðaþjónustu. Tímaritið var prentað í lit og þótti metnaðarfullt. Góðar viðtökur í Evrópu og Norður-Ameríku skiptu verulegu máli fyrir markaðsstarf útflutningsfyrirtækja og flugfélög. Tímaritið hlaut skjótt lof fyrir framúrskarandi hönnun. Heimir lék mikilvægt hlutverk á bak við tjöldin í aðdraganda samningaviðræðna Íslendinga og Breta um lausn landhelgisdeilna árin 1972 og 1976. Þeirri lítt þekktu en merku sögu er meðal annars gerð góð skil í væntanlegri bók Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings um sögu landhelgisdeilna 1971-1974. Fyrri eiginkona Heimis var Birna Björnsdóttir, f. 2. febrúar 1936, d. 15. júní 1985. Þau áttu saman þrjú börn, Hannes, f. 25. mars 1960, Sigríði, f. 29. mars 1963 og Magnús, f. 25. ágúst 1964. Barnabörn þeirra eru tíu og barnabarnabörnin þrettán. Síðari eiginkona hans var Oddný Björgvinsdóttir. Þau skildu. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Blysin tendruð á Þjóðhátíð í Eyjum Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Andlát: Heimir Hannesson Katrín Edda keypti hús á 92 milljónir Hjólaði yfir 100 km í sumarfríinu Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Ósamstiga um afskipti erlendra ráðamanna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki rignt meira í rúm 40 ár Skýrslutökur í varðskipi Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Minkagildrurnar tómar í morgun: Sjá til lands Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Vilja halda daginn heilagan Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB „Ég tala alltaf um að Ísland sé hlýtt land“ Mismunað eftir stöðu foreldra Bílslys á Hrútafjarðarhálsi: Einn fluttur á sjúkrahús Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tilkynnt um innbrot víða á höfuðborgarsvæðinu Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Blysin tendruð á Þjóðhátíð í Eyjum Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Andlát: Heimir Hannesson Katrín Edda keypti hús á 92 milljónir Hjólaði yfir 100 km í sumarfríinu Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Ósamstiga um afskipti erlendra ráðamanna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hleypur fyrir ketti í minningu hunds Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Ekki rignt meira í rúm 40 ár Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Vilja halda daginn heilagan Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB „Ég tala alltaf um að Ísland sé hlýtt land“ Mismunað eftir stöðu foreldra Bílslys á Hrútafjarðarhálsi: Einn fluttur á sjúkrahús Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tilkynnt um innbrot víða á höfuðborgarsvæðinu Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn