MG er mest selda kínverska bílamerkið á Íslandi. Nýjasta viðbótin í MG er nú á leiðinni, en það er nýr MGS6 sem er fjórhjóladrifinn og ríkulega vel útbúinn bíll í Luxury-útfærslu. Drægnin er 485 km. Bíllinn er aðeins 5,1 sekúndu úr kyrrstöðu í hundraðið. Rafmótorar skila bílnum 362 hestöflum þannig að það er talsvert afl sem bíllinn hefur yfir að ráða. Ökumaður getur valið úr fimm akstursstillingum. Í innanrýminu er 12,8” snertiskjár og sjónlínuskjár. Bíllinn er með 360° myndavélar. Nánar er fjallað um bílinn í Bílablaði Viðskiptablaðsins . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .