Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

MGS6 EV og MG Cyberstar frumsýndir

Read Full Article →

MGS6 EV verður frumsýndur á fjölskylduhátíð BL á morgun, laugardag, ásamt aflmiklum MG Cyberster-sportbíl sem fær hjartað til að slá hraðar. Gestir sýningarinnar hjá BL verða þeir fyrstu sem líta sportbíllinn Cyberster augum. MGS6 EV er rúmgóður bíll og búinn snjöllum tæknilausnum og þægindum. Hann er fjórhjóladrifinn, alrafmagnaður fjölskyldujepplingur með allt að 485 km drægni (WLTP). Bíllinn hefur þegar vakið athygli fyrir góðan árangur en hann bar sigur úr bítum í norska El Prix 2026, þar sem aðstæður voru óvenju krefjandi með allt að −32 gráðum í frosti. Sjá einnig Fjórhjóladrifinn bíll frá MG MGS6 EV stóð sig sérstaklega vel og missti aðeins um 29% af uppgefinni WLTP-drægni, sem var meðal lægsta drægnitaps í prófinu. Til samanburðar var meðaltap þeirra bíla sem tóku þátt 37,7% og fór hæst í 46%. El Prix er eitt þekktasta raunpróf rafbíla í Evrópu og er skipulagt af NAF og bílatímaritinu Motor þar sem bílar eru keyrðir fullhlaðnir við sömu aðstæður þar til drægni er fullreynd. MG Cyberster er nýr, 510 hestafla, alrafmagnaður, tveggja sæta sportbíll með sterka tilvísun í ríka sögu MG. Hann er hannaður til að vekja athygli og skartar svökölluðum „scissor“ hurðum og hröðun sem vekur athygli. Þá verða Íþróttaálfurinn og Solla stirða á svæðinu og bregða á leik á sýningunni sem er milli klukkan 13-15 á morgun laugardag.

Share this article