Laugavegshlaupið var í dag og mættu keppendur frá 33 þjóðum. Margir af fremstu hlaupurum landsins voru meðal þátttakenda. Hlaupið er 55 kílómetrar - farið er af stað úr Landmannalaugum og Laugavegurinn hlaupinn inn í Húsadal í Þórsmörk þar sem því lýkur. Alls voru 824 keppendur skráðir til leiks þetta árið en þetta er í þrítugasta skiptið sem hlaupið er haldið. Hin sænska Tove Alexandersson var meðal þátttakenda. Hún er margfaldur heimsmeistari í utanvegahlaupum og hefur unnið 23 gullverðlaun á HM í greininni. Hún stóð undir væntingum og sló brautarmetið í kvennaflokki. Hún kom í mark á fjórum klukkutínum, fjórtán mínútum og átta sekúnum og sigraði um leið kvennaflokkinn öruggt því hún var rúmum 40 mínútum á undan næstu konu. Brautarmetið var áður í höndum Andreu Kolbeinsdóttir en það setti hún árið 2023 þegar hún hljóp á fjórum klukkutímum, 22 mínútum og 56 sekúndum. Í öðru sæti í kvennaflokki var svo Íris Anna Skúldaóttir á tímanum 04:57:38. og á eftir henni í þriðja sæti var Helga Bergsdóttir á tímanum 05:02:35. Þorsteinn Roy Jóhannsson keppti einnig í dag. Hann hefur unnið hlaupið síðustu tvö ár og stefndi á að gera slíkt hið sama í dag. Það gekk eftir og Þorsteinn kláraði hlaupið á fjórum klukkutímum, sex mínútum og 35 sekúndum. Bretinn Andrew Douglas fylgdi fast á hæla og kom sex mínútum síðar í mark. Í þriðja sæti var svo Stefán Pálsson á tímanum 04:17:22. Í heildarkeppninni varð Þorsteinn fremstur, Douglas annar og Tove Alexandersson þriðja.