Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sörloth hótað lífláti eftir tapið gegn Englandi

Read Full Article →

Flest skilaboðin virðast tengjast færi sem Noregur fékk í lok fyrri hálfleiks. Sörloth og Erling Braut Haaland voru þá tveir gegn einum varnarmanni Englands og í stað þess að senda á Haaland valdi Sörloth að skjóta sjálfur en skotið var varið. Lena Selnes, unnusta og barnsmóðir Sörloth, birti í gær hluta þeirra umsagna sem voru settar við mynd sem hún hafði sett inn eftir leikinn gegn Englandi. Þar gefur að líta skilaboð á borð við: „Vertu svo vænn að fremja sjálfsmorð, fíflið þitt“ og „Verður drepinn!“ og svo: „Ég ætla að drepa hann!“ Selnes skrifar að HM og fótbolti hafi gefið mikla gleði en um leið svo mikið hatur. „Ég vil eiginlega ekki veita þessu athygli en verð að gera það eftir umsagnir eins og þessar,“ segir hún á Instagram . „Ég vona að allir hugsi aðeins meira áður en svona umsagnir eru sendar, burtséð frá aðstæðunum,“ bætti hún við. Á Instagram-síðu Sötloth sjálfs eru líka sífellt fleiri neikvæð skilaboð við myndir sem hann hefur deilt frá mótinu. Við eina myndina eru komnar yfir 100 þúsund umsagnir, flestar á ensku eða öðrum tungumálum en norsku. Þjálfarinn ráðleggur leikmönnum að forðast samfélagsmiðla Ståle Solbakken, þjálfari norska liðsins, ræddi þessi mál við fjölmiðla í gær, daginn eftir tapið gegn Englandi. Hann sagði það sorglegt að þetta væri staðan, að þetta væri orðinn heimurinn sem við búum í. „Þess vegna segi ég við strákana að þeir eigi að forðast samfélagsmiðla, sérstaklega á svona dögum. Jafnvel þó það hafi mest verið góðir dagar er þetta ekki staðurinn til að sækja sér orku,“ hefur norska ríkisútvarpið eftir Solbakken.

Share this article