Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Undanúrslitin hefjast með nágrannaslag

Read Full Article →

Það mætast stálin stinn í Dallas í kvöld. Frakkland hefur skorað 16 mörk í leikjunum sex hingað til. Á móti því hefur spænska liðið aðeins fengið eitt mark á sig. Spánverjar eru þess utan ríkjandi Evrópumeistarar og hafa verið vaxandi á mótinu. Þeirra eini heimsmeistaratitill vannst árið 2010 og hafa þeir síðan þá ekki komist lengra en í 16-liða úrslit á HM þar til nú. Frakkar unnu annan heimsmeistaratitil sinn á HM í Rússlandi 2018 og töpuðu svo í úrslitaleik gegn Argentínu í Katar fyrir fjórum árum. Aðeins Þýskaland (1982-1990) og Brasilía (1994-2002) hafa náð því að leika þrisvar til úrslita í röð. Svo má geta þess að í dag er Bastilludagurinn, þjóðhátíðardagur Frakka. Frakkland losnaði undan einveldi Búrbónanna í frönsku byltingunni, sem er minnst á Bastilludaginn. Afkomendur Búrbónanna eru núverandi konungsfjölskylda Spánar. Dagskrá kvöldsins á RÚV 18:30 Stofan 18:50 Frakkland - Spánn 21:05 HM kvöld Vegna þess að leikið er klukkan 19 í kvöld verða fréttir í sjónvarpi klukkan 18 á RÚV og samtímis með táknmálstúlkun á RÚV 2.

Share this article