Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Myndin farið víða án þess að ljósmyndarinn fái krónu

Read Full Article →

„Þetta er svona tragekómískt. Maður er að hlaða upp einhverjum myndum til þess að reyna að fá einhvern pening fyrir og myndirnar lenda á milli skips og bryggju og eru svo bara í notkun alveg á fullu einhvers staðar úti í heimi án þess að maður fái krónu fyrir það.“ Þetta segir Kristján E. Karlsson um ljósmynd eftir sig sem hann hefur rekist á víða. Kristján er maður margra hatta; ökuleiðsögumaður, grafískur hönnuður til margra ára og rekstrarmaður gistiheimilis í Miðdölum. Hann lýsir sér frekar sem áhugaljósmyndara en ljósmyndara. „Þetta eru hestar í útigangi í Reykjadal í Dalasýslu hjá nágranna mínum, Hjalta á Fellsenda,“ segir hann um myndina. Prýddi kaffipoka Kristján hlóð nokkrum tugum ljósmynda upp í myndabankann Corbis fyrir hátt í tíu árum til að selja þær. Áhugaljósmyndarinn hefur reyndar aldrei náð lágmarksupphæð fyrir sölu hjá Corbis og því aldrei fengið greitt fyrir myndirnar. Corbis var síðan keyptur af stærri myndabanka, Getty Images. Kristján var búinn að gleyma því að hafa yfirhöfuð hlaðið ljósmyndunum upp í myndabankann þegar hann rakst á myndina af hestunum hans Hjalta á kaffihúsi í Grundarfirði sem malar og selur eigið kaffi. „Það fyrsta sem ég sé er mynd frá mér á umbúðunum. Ég verð þá svolítið hissa og spyr hvernig standi á þessu. Þá segja þau að það fylgi fullt af myndum með þegar þau nota forrit sem heitir Canva sem er mjög stórt og mikið forrit. Það eru allavega mjög margir amatörar [áhugamenn] að nota þetta til að hanna og búa til,“ segir Kristján. Notuð mörgum tugum sinnum hið minnsta Áhugaljósmyndarinn telur Getty Images hafa gert samning við glæru- og myndvinnsluþjónustuna Canva um notkun á myndum úr bankanum. Eftir þetta reyndi hann að ná sambandi við einhvern hjá Getty án árangurs. „Svo líður einhver smá tími. Þá hefur vinur minn samband við mig og segir mér að það sé einhver að framleiða húfur þar sem þú getur valið myndir til þess að setja á húfuna. Ein af þessum myndum sem hægt var að velja var þessi sama mynd.“ Þá fyrst fór Kristján að verða órólegur yfir dreifingu ljósmyndarinnar. Hann hlóð henni upp í Google-leitarvélina og leitaði, það er að segja leitaði að myndinni sjálfri. Þá kom í ljós að hún hafði verið notuð mörgum tugum sinnum án vitneskju Kristjáns. „Það var til dæmis hjá bílaleigum og ferðaþjónustum og meira að segja Arion banka.“ Kristján hafði samband við Arion banka og spurðist fyrir um notkun á myndinni. Hún hafði verið notuð í einhvers konar kynningarefni hjá fyrirtækinu. „Markaðsstjórinn kannaðist ekkert við að það hefði verið fengin einhver mynd hjá mér eða keypt. Þetta var orðið svo langt um liðið. En þeir buðu mér strax að senda reikning fyrir myndinni sem ég og gerði. Ekkert stóran reikning en þeir vildu greinilega hafa allt sitt á hreinu.“ Kristján segir það ákveðið karma að ljósmyndin hafi verið notuð án þess að hann fái greitt fyrir. „Sem grafískur hönnuður í tugi ára verður að játast að maður hefur stundum farið á netið og gúglað einhverja mynd og notað hana. Þannig það er ekki eins og ég sé sjálfur alsaklaus hvað þetta varðar.“ Fleiri lent í þessu Málið virðist ekki vera einsdæmi. Kristján setti innlegg í Facebook-hópinn Fókus - félag áhugaljósmyndara í lok maí þar sem hann vakti athygli á því. Ein kona skrifar undir innleggið og segist hafa séð myndina í fjölda ljósmyndabanka. „Þetta er frábær mynd, ég hef oft séð hana á stock photo síðum, gæti mögulega hafa notað hana einhverntíman líka. Ég vissi ekki að stock síður væru svona dirty, ég einmitt hélt að eigandi myndanna fengi alltaf royalties ef man downloadar.“ Einn karl segist hafa lent í hinu sama. „Sama hjá mér, myndir á Canva sem ég hafði aldrei leyft notkun á og veit ekki ennþá hvaðan þeir fengu þær.“ Hann er ekki einn. Kona nokkur lýsir svipaðri reynslu. „Þetta er óþolandi, það er einmitt ljósmynd eftir mig búin að ferðast um netið og á ýmislegt sl ca 12 ár, fann ekki hvernig hún slapp út í fullum gæðum en ég hafði einmitt sett einhverjar myndir á svona sölusíðu.“

Share this article