Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bandarísk ríki endurskoða ívilnanir til gagnavera

Read Full Article →

Fjölmörg bandarísk ríki sem lokkuðu til sín gagnaver með milljarða dala skattaívilnunum eru nú farin að rifta samningunum. Á vef WSJ segir að tæknirisar á borð við Meta, Amazon og Google eigi á hættu að missa samninga við einstök ríki. Ohio er eitt þessara ríkja en þingmenn þar veittu tæknifyrirtækjum undanþágu frá söluskatti á netþjóna og annan búnað fyrir gagnaver fyrir rúmum áratug. Hugmyndin var að skattaívilnanirnar myndu laða milljarða dala fjárfestingar til ríkisins. Það gekk eftir og Ohio varð einn helsti áfangastaður gagnavera í Bandaríkjunum. Uppsveiflan í gervigreind margfaldaði hins vegar umfang undanþágunnar og nam hún meira en 1,5 milljörðum dala í fyrra, tífalt meira en ríkið hafði upphaflega áætlað. Mikil reiði braust út meðal kjósenda eftir að fréttamiðlar greindu frá upphæðinni og í kjölfarið lokaði Mike DeWine, ríkisstjóri Ohio, fyrir nýjar umsóknir í maí á þessu ári. Sjá einnig Færa gagna­vera­upp­byggingu til Sádi-Arabíu Svipuð þróun hefur átt sér stað víða um Bandaríkin og hafa þingmenn í meira en tíu ríkjum, þar á meðal Illinois, New Jersey og Washington, tekið sambærilegar ákvarðanir. Í Texas hefur einnig verið lagt fram frumvarp um bann við slíkum ívilnunum. Ívilnanirnar geta ráðið úrslitum um staðsetningu gagnavera þar sem örgjörvar og netþjónar eru stór hluti af kostnaði við uppbyggingu þeirra og búnaðurinn er endurnýjaður á nokkurra ára fresti. Talsmenn iðnaðarins benda hins vegar á að aðrir skattar sem fyrirtækin greiða fjármagni meðal annars skóla og löggæslu. Þeir segja afnám ívilnananna einfaldlega munu færa gagnaverin annað, meðal annars til ríkja á borð við Indiana, Vestur-Virginíu og Wyoming, sem hafa áfram hagstæð skattkerfi.

Share this article