Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Greiðir Carroll 5,6 milljarða dala í skaðabætur

Read Full Article →

Rithöfundurinn E. Jean Carroll hefur fengið greiddar rúmlega 5,6 milljónir dala eftir að kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði beitt hana kynferðislegri áreitni og ærumeiðingum. Frá þessu greinir fréttastofa CNBC. Heildarfjárhæðin samanstendur af 5 milljóna dala skaðabótadómi frá maí 2023 auk áfallinna vaxta. Lögmaður hennar, Roberta Kaplan, sagði að Carroll hefði nú fengið greitt það sem kviðdómurinn dæmdi henni. Lögmenn Trumps svöruðu ekki beiðni CNBC um umsögn. Trump var talinn hafa beitt Carroll kynferðislegri áreitni í lúxusfataversluninni Bergdorf Goodman á Manhattan á tíunda áratugnum og síðan beitt hana ærumeiðingum árið 2019 eftir að hún greindi opinberlega frá málinu. Í öðru alríkismáli, sem snerist um ærumeiðingarnar, dæmdi kviðdómur Trump til að greiða Carroll samtals 83,3 milljónir dala í skaðabætur í janúar 2024. Trump hefur harðlega neitað ásökunum Carroll og áfrýjað ítrekað í báðum málum. Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í lok júní að taka fyrir áfrýjun Trumps vegna dómsins um kynferðislega áreitni og ærumeiðingar.

Share this article