Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Válynd veður á „verðlækkunarsumri“ ríkisstjórnarinnar

Read Full Article →

Í aprílbyrjun kynnti ríkisstjórnin tímabundnar efnahagsaðgerðir sem ætlað var að koma böndum á viðvarandi verðbólgu. Tilefni þeirra voru miklar hækkanir á heimsmarkaðsverði jarðefnaeldsneytis vegna stríðsátaka við Persaflóa. Fyrirséð var að þær myndu auka enn frekar á verðbólgu hér á landi sem þegar hafði magnast vegna gjaldskrárhækkana hins opinbera um áramótin. Aðgerðirnar voru þríþættar. Langmikilvægasta þeirra var tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24% í 11%. Jafnframt voru kynnt áform um eflingu verðlagseftirlits og að loka svokölluðu „hleðslugati“. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. © Anton Brink (Anton Brink) „Með þessu vilja stjórnvöld leggja sitt af mörkum og setja fordæmi fyrir atvinnulífið til að stemma stigu við verðhækkunum. Vonandi verður þetta líka áskorun til fleiri þarna úti í samfélaginu að við förum út í verðlækkunarsumar, að okkur takist að hemja verðbólguna í sumar af því að það er svo mikið í húfi,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þegar aðgerðirnar voru kynntar. Handstýrðar aðgerðir Lækkun virðisaukaskattsins tók gildi 1. maí og rennur út 31. ágúst. Þessi tímamörk voru ekki valin af handahófi. Endurskoðunarákvæði kjarasamninga virkjast í haust ef verðbólga mælist yfir 4,7%. Markmiðið var augljóst; að halda verðbólgunni undir þeim mörkum og koma þannig í veg fyrir að ákvæðið virkjaðist og friður á vinnumarkaði raskaðist. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article