Ekkert lát er á spennunni við Persaflóa og stríðsátökum Bandaríkjamanna og Írana virðist ekki ætla að linna. Það er því útlit að heimsmarkaðsverð á olíu verði hátt þegar tímabundin lækkun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttir á virðisaukaskatt á eldsneyti rennur út í ágúst lok. Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur, segir að þróunin á alþjóðavettvangi hafi endanlega gert út um þá veiku von sem enn var eftir um að forsendur kjarasamninga haldi og telur vaxtahækkanir vera á kortunum í ágúst eða á komandi vetri: „Við erum að reikna með því að verðbólgan í ágúst mælist 5,4% og það var fyrir atburði síðustu sólarhringa. Þessar vendingar hjálpa að sama skapi ekki peningastefnunefnd svo það eru enn talsverðar líkur á frekari vaxtahækkunum í ágúst eða á komandi vetri. Það má því segja að tilraunin um að handstýra verðbólgunni niður fyrir 4,7% forsendu kjarasamninga hafi mistekist og í ljósi stöðu ríkisfjármála og að slíkar æfingar eru ekki til eftirbreytni að mati peningastefnunefndar er ólíklegt að það verði framlengt.” 10% að öllu öðru óbreyttu Þórður Gunnarsson, hagfræðingur sem hefur sérhæft sig í hrávörumörkuðum, segir að miðað við núverandi aðstæður ætti eldsneyti að hækka um 10% milli mánaða þegar hin tímabundna lækkun virðisaukaskatts rennur út í ágúst lok. „Eini möguleikinn til þess að þess muni ekki gæta rækilega í verðlagsmælingum er ef eldsneytisverð lækkar verulega milli júlí- og ágústmánaðar. Þar er ekki nóg að horfa bara til hráolíuverðs, sem segir ekki einu sinni hálfa söguna, ef líta á til verðbreytinga á eldsneyti til skemmri tíma,“ segir Þórður. Nánar er fjallað um þetta og heimsmálin í ítarlegri fréttaskýringu í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .