Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hvað segir margfeldi okkur?

Read Full Article →

Í fjárfestingum er algengt að bera saman fyrirtæki með kennitölum til einföldunar. Fyrirtæki sem er metið á 8x hagnað er talið „ódýrt“ á meðan annað fyrirtæki sem er metið á 20x hagnað er sagt vera „dýrt“. Þessi aðferð er einföld, mikið notuð en oft á tíðum röng. Lágur margfaldari er ekki alltaf afsláttur heldur skilaboð. Þegar markaðurinn metur fyrirtæki á 8x hagnað er markaðurinn í raun að segja að hagnaðurinn sé ekki jafn verðmætur og hann virðist. Annaðhvort mun hann dragast saman, vaxa hægar eða verða áhættusamari en hjá sambærilegum fyrirtækjum. Ef markaðurinn hefur rétt fyrir sér er fyrirtækið ekki ódýrt. Fjárfestar eru einfaldlega að greiða lágt verð fyrir rekstur sem fer versnandi. Þetta er hin klassíska virðisgildra (e. value trap): fyrirtæki sem virðist ódýrt miðað við hagnað fortíðar, en dýrt miðað við hagnað framtíðar. Hið gagnstæða á einnig við. Fyrirtæki sem metið er á 20x hagnað getur virkað dýrt. Ef það getur endurfjárfest fjármagni á arðsemi umfram fjármagnskostnað til framtíðar, getur verðmatið í dag reynst ódýrt. Margfeldið var hátt vegna þess að fyrirtækið átti það skilið. Margfeldi er ekki niðurstaða heldur samantekt á væntingum markaðarins um vöxt, arðsemi, ráðstöfun fjármagns og áhættu. Að bera saman fyrirtæki eingöngu út frá margföldurum er eins og að bera saman verð á tveimur fasteignum án þess að hafa nokkra hugmynd um staðsetningu þeirra, ástand eða stærð. Í stað þess að spyrja þig hvort margfeldið sé hátt eða lágt, spurðu þig frekar hvaða væntingar margfeldið felur í sér. Hvað þarf að gerast til að verðið í dag sé réttlætanlegt? Eru þær forsendur raunhæfar? Lágt margfeldi skilgreinir ekki góða eða ódýra fjárfestingu. Góð fjárfesting er fyrirtæki sem skilar betri framtíð en markaðurinn hafði verðlagt. Pistillinn birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article