Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stærsta fjárfestingarþema áratugarins er rétt að byrja

Read Full Article →

Þrátt fyrir gríðarlega umræðu um gervigreind og hundruð milljarða dala fjárfestingu bendir margt til þess að stærsta fjárfestingarþema áratugarins sé enn aðeins á fyrstu metrunum. Margir fjárfestar og stjórnendur tala eins og byltingin sé þegar langt komin. Gögnin segja allt aðra sögu. Hversu margir nota gervigreind í raun? Goldman Sachs birti nýlega skýrslu um notkun á gervigreind sem dregur upp áhugaverða mynd. Skv. skýrslunni nota um 84% íbúa heimsins gervigreind ekki að neinu marki. Um 16% nota grunnútgáfur mállíkana án greiðslu, en aðeins 0,3% greiða fyrir öflugri útgáfur. Það sem vekur þó mesta athygli er að einungis um 0,04% heimsbyggðarinnar eru farin að nýta sér næsta stig tækninnar, það er að byggja eigin verkfæri, sjálfvirkni eða lausnir með aðstoð gervigreindar. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article