Nú er lokasprettur heimsmeistaramótsins í fótbolta fram undan og því magnast spennan í keppninni um gullskóinn á sama tíma. Lionel Messi og Kylian Mbappé eru jafnir í efsta sæti fyrir lokaleikina. Argentína mætir Spáni í úrslitaleiknum og Frakkland spilar við England um bronsið. Svona stendur keppnin fyrir lokaleikina Lionel Messi – 8 mörk Kylian Mbappé – 8 mörk Erling Braut Haaland – 7 mörk Jude Bellingham – 6 mörk Harry Kane – 6 mörk Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karlalandsliðsins, spáir því að Messi endi með skóinn í sínum höndum. „Maður þarf að vera ansi vitlaus til að veðja ekki á Messi. Er það ekki bara skrifað í skýin að hann muni taka þennan titil og styttuna góðu með sér heim?“ Mikel Oyarzabal er markahæsti Spánverjinn á mótinu með fimm mörk. Erling Braut Haaland vermir nú þriðja sætið en hann mun ekki bæta við marki þar sem Norðmenn hafa nú siglt heim á leið. Stóra metið Þýski Miroslav Klose átti markametið yfir flest mörk skoruð á HM fyrir þetta mót en hann skoraði alls 16 mörk á HM. Ljóst var að þetta met myndi að líkindum falla á þessu móti því Messi hafði til að mynda skorað 13 mörk fyrir þetta mót og Mbappé 12. Báðir hafa þeir tekið fram úr Klose. Tala Messi stendur nú í 21 marki og Mbappé í 20. Þetta er hins vegar líklega síðasta heimsmeistaramót Messi en Mbappé er 27 ára og því góðar líkur á því að hann muni bæta enn fremur við markafjöldann þegar fram líða stundir. Úrslitahelgin fram undan Leikur Englands og Frakklands um þriðja sætið er á laugardaginn klukkan 21:00. Úrslitaleikur Evrópumeistara Spánar og ríkjandi heimsmeistara Argentínu er svo á sunnudag klukkan 19:00.