Lionel Messi sló markamet Miroslav Klose í gær þegar hann skoraði fyrra mark sitt gegn Austurríki. Hann bætti svo öðru við og markametið eru nú 17 mörk. Öruggt er að metið yfir fjölda marka á einu heimsmeistaramóti verður slegið. 172 mörk voru skoruð í Katar fyrir fjórum árum en í ár eru leikirnir 40 fleiri. Þetta met fellur. Meðatalsmetið virðist þó vera nokkuð öruggt. 5,4 mörk voru skoruð að meðaltali í leik á HM 1954 en á síðasta móti voru mörkin 2,68 að meðaltali. Til þessa á mótinu í ár eru mörkin orðin 134 í 44 leikjum sem gerir 3,04 í leik. Það er ljómandi gott en ógnar ekki metinu. Svo er það keppnin um markahæsta leikmanninn. Þar stefnir í hasar. Gullskórinn eftirsótti Markakóngur HM fær gullskó og hefur gert frá árinu 1982 þegar Ítalinn Paolo Rossi fékk hann. Æði misjafnt er hversu mörg mörk duga til að fá þennan eftirsótta skó. Um miðja 20. öldina þurfti t.d. býsna mörg mörk. Sandor Kocsis frá Ungverjalandi skoraði 11 á HM 1954 og Frakkinn Just Fontaine 13 fjórum árum síðar. 1962 dugðu 4 mörk til að vinna gullskóinn. 6 mörk hafa oftast nægt síðustu áratugi. Frá 1978 til 1998 skoruðu markakóngarnir alltaf 6 mörk. Ronaldo skoraði 8 þegar Brasilía vann HM 2002 og hið sama gerði Kylian Mbappe á síðasta móti. Margir um hituna í ár Í ár hafa helstu markahrókar mótsins farið gríðarlega vel af stað. Messi er með 5 mörk eftir tvo leiki og Mbappe og Erling Braut Haaland eru komnir með 4 mörk. Jonathan Davis og Deniz Undav eru svo með 3 mörk eftir tvo leiki. Harry Kane spilar svo í kvöld með Englandi en hann skoraði tvisvar í fyrsta leiknum. Það stefnir því í ansi harða baráttu um gullskóinn í ár. Það hefur aðeins tvisvar gerst að tveir leikmenn skori 7 mörk eða meira á HM, líkt og á síðasta móti þegar Mbappe skoraði 8 og Messi 7. Miðað við fjölda marka í fyrstu leikjunum er ekki ósennilegt að það met falli í ár. Fjórum sinnum hefur það m.a.s. gerst að 4 mörk dugi til að fá silfurskóinn.