Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frábær fjórðungur en almennir fjár­festar sátu eftir

Read Full Article →

Annar árs­fjórðungur var gjöfull á Wall Street. Hluta­bréf hækkuðu, við­skipti jukust og stórir fjár­festingar­bankar högnuðust veru­lega á auknum um­svifum á mörkuðum. Það þýðir þó ekki að flestir fjár­festar hafi náð að vinna markaðinn. Í frétta­bréfi Financial Times er bent á að við­skiptaum­svif hafi verið óvenju­mikil á fjórðungnum. Gold­man Sachs greindi frá því í vikunni að tekjur bankans af hluta­bréfa­við­skiptum hefðu numið 7,4 milljörðum dala, sem er met og 72% aukning frá sama tíma í fyrra. Sam­bæri­legar tekjur Morgan Stanl­ey jukust um 69% og hjá JP Morgan námu þær 85%. Citigroup og Bank of America skiluðu einnig mjög sterkri af­komu í hluta­bréfa­við­skiptum. Ef tekjur stærstu bankanna héldust á sama hraða í heilt ár myndu þær nema um 180 milljörðum dala. Það voru ekki aðeins bankarnir sem græddu á sveiflunum. Vogunar­sjóðurinn Millennium er sagður hafa hagnast um 3,7 milljarða dala í síðasta mánuði, meðal annars á við­skiptum í kringum endur­vogun hluta­bréfa­vísi­talna. Þá sagðist við­skipta­vakinn Cita­del Secu­rities hafa af­greitt met­fjölda pantana í hluta­bréfum og val­réttum. Þegar slíkir aðilar græða mikið á við­skiptum þarf ein­hver annar að vera hinum megin við borðið. Thomas Peterf­fy, stjórnar­for­maður Interacti­ve Brokers, segir lík­legt að meiri­hluti við­skipta­vina miðlarans hafi ekki náð að slá S&P 500-vísitöluna á fjórðungnum. „Ég myndi segja að fleiri hafi verið undir S&P 500-vísitölunni en yfir henni. Þegar viðskiptavinirnir eru teknir saman eru þeir í raun orðnir markaðurinn sjálfur,“ segir Peterffy. Sjá einnig Stefnir í metþóknanir hjá fjár­festingar­bönkum Með öðrum orðum: Þegar markaðurinn hækkar mikið geta flestir fjár­festar verið sáttir við að hafa hagnast. En það er annað en að ná betri ávöxtun en markaðurinn sjálfur. FT rifjar í þessu sam­hengi upp gamla sögu af gesti við Wall Street sem sá glæsi­lega snekkju verðbréfa­miðlara og spurði: Hvar eru snekkjur við­skipta­vinanna? Sagan varð síðar titill bókar Fred Schwed, Where Are the Cu­s­to­mers’ Yachts?, sem fjallar með beittum hætti um hversu oft milli­liðirnir hagnast betur en við­skipta­vinirnir. Almennir fjár­festar sátu eftir Interacti­ve Brokers hefur áður aug­lýst að al­mennir við­skipta­vinir félagsins hafi slegið markaðinn um 1,3 pró­sentu­stig í fyrra. Í smáa letrinu kom þó fram að aðeins var miðað við reikninga sem voru með að minnsta kosti 50 þúsund dali í árs­byrjun 2025. Peterf­fy bendir sjálfur á að við­skipta­vinir Interacti­ve Brokers séu ekki endi­lega dæmi­gerðir smáfjár­festar. Á hinum enda markaðarins er Robin­hood, sem varð þekkt í tengslum við meme-hluta­bréfaæðið. Þar eru eignir við­skipta­vina að jafnaði mun minni. Meða­l­eignir á við­skipta­vini námu um 12 þúsund dölum í fyrra, sem er aðeins brot af því sem al­gengt er hjá eldri og stærri miðlurum á borð við Schwab. Robin­hood birtir vísitölu yfir þau hluta­bréf sem við­skipta­vinir félagsins halda mest upp á. Hún gefur ekki full­komna mynd af ávöxtun þeirra, meðal annars vegna þess að val­réttar­við­skipti eru ekki tekin með, en hún sýnir þó ákveðna vís­bendingu um hegðun smærri fjár­festa. Vinsælustu bréfin koma ekki á óvart: Nvidia, App­le, Amazon, Tesla og, frá júní, SpaceX. Þrátt fyrir það hefur vísi­tala Robin­hood-við­skipta­vina gefið lakari ávöxtun en bæði Nas­daq-vísi­talan og S&P 500 frá árs­byrjun 2020, sam­kvæmt gögnum sem félagið lét FT í té. Það kann að hljóma undar­lega. Hvernig geta fjár­festar sem kaupa vinsælustu og mest ræddu hluta­bréfin samt setið eftir? Svarið liggur oft í tíma­setningum, við­skipta­kostnaði, of miklum kaupum og sölum og því að smærri fjár­festar elta gjarnan bréf eftir að stærsta hækkunin er þegar komin fram. Þá geta val­réttar­við­skipti aukið áhættuna, jafn­vel þótt undir­liggjandi hluta­bréf hækki til lengri tíma. FT bendir á að ein­faldasta leiðin fyrir óreynda fjár­festa til að tryggja sér markaðsávöxtun eftir sterkan árs­fjórðung sé að kaupa ódýra vísitölu­sjóði og halda þeim. Slík stefna er hins vegar ekki jafn ábatasöm fyrir miðlara, fjár­festingar­banka og við­skipta­vaka og mikil velta í einstökum hluta­bréfum og af­leiðum. Á fimmtu­dag snerist stemningin þó skyndi­lega á mörkuðum. Tækni­bréf, einkum hluta­bréf í ör­gjör­va­fram­leiðendum, lækkuðu skarpt og fram­virkir samningar á Nas­daq bentu til frekari lækkana. Fjár­festar leituðu í varnar­legri geira, meðal annars neyslu­vöru­fyrir­tæki. Sú þróun minnir á að jafn­vel á sterkum markaði geta fjár­festar sem elta heitustu við­skiptin lent í því að vera seinir inn og snemma út. Markaðurinn getur átt frábæran fjórðung án þess að flestir fjár­festar geri það sama.

Share this article