Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði í morgun til að sérlausn Íslands í ETS-kerfi sambandsins yrði framlengd um þrjú ár, til ársins 2030. Fréttirnar eru jákvæðar fyrir Icelandair að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra félagsins, þó að hann telji áfram mikilvægt að vinna að varanlegri lausn til að tryggja samkeppnishæfni evrópskra flugfélaga. „Það er jákvætt að sérlausnin sé framlengd og að áfram sé tekið tillit til sérstöðu Íslands hvað þetta varðar. Engu að síður höfum við, ásamt stjórnvöldum, talað fyrir því að nauðsynlegt sé að fá varanlega lausn. Það er erfitt að byggja rekstur á tímabundnum lausnum,“ segir Bogi í samtali við Viðskiptablaðið. Sjá einnig Framlengja ETS-sérlausn fyrir flug um þrjú ár „Flugleiðir Icelandair eru að meðaltali lengri en hjá öðrum evrópskum félögum innan ETS-kerfisins svo það leggst á okkur aukinn kostnaður,“ segir Bogi jafnframt. Íslensk stjórnvöld sömdu árið 2023 um tímabundna sérlausn á grunni landfræðilegrar legu sem hefði að óbreyttu runnið út í lok árs 2026. Hún fól í sér að Íslandi var veitt heimild til að úthluta gjaldfrjálsum losunarheimildum fyrir flug milli Íslands og EES svæðisins, Bretlands og Sviss. Bogi segir það mikilvægt fyrir evrópskan flugrekstur að ekki séu lagðar frekari byrðar en á flugfélög utan Evrópu. „Fyrir evrópskan flugrekstur, þar á meðal Ísland, er mikilvægt að við leggjum ekki frekari byrðar á evrópsk flugfélög en samkeppnisflugfélögin sem eru að gera út frá öðrum álfum þar sem kostnaður er lægri.“ Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er hluti af endurskoðun á ETS-kerfinu. Bogi segir Icelandair hafa unnið náið með íslenskum stjórnvöldum og embættismönnum að málinu og muni halda því áfram. Hann segir jafnframt of snemmt að leggja endanlegt mat á áhrif tillagnanna þar sem þær hafi fyrst verið kynntar í morgun og að félagið muni fara yfir þær nánar á næstu dögum. Þá segist hann vonast eftir að endurskoðun á ETS-kerfinu muni færa kostnað evrópska flugiðnaðarins nær því sem þekkist á alþjóðlegum markaði. „Við og aðrir flugrekendur í Evrópu höfum talað fyrir því að alþjóðlega kerfið CORSIA verði innleitt því það er ekki heppilegt að vera með staðbundna lausn á alþjóðlegu vandamáli, það hefur neikvæð áhrif á samkeppnishæfnina.“ „Það sem er lykilatriði í þessu er að við séum ekki að borga hlutfallslega meira en samkeppnisfélögin og þessi sérlausn hjálpar til við það,“ bætir Bogi við. Losunar- og kolefnisskattur Icelandair nam 5,3 milljörðum króna á síðasta ári en þar af námu ETS-gjöld um 4,3 milljörðum króna.