Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

14% tekjuvöxtur hjá Erninum

Read Full Article →

Örninn Hjól ehf., stærsta reiðhjólaverslun landsins, hagnaðist um 83 milljónir króna eftir skatta í fyrra, samanborið við 60 milljóna króna hagnað árið áður. Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa á árinu 2026, að því er segir í ársreikningi félagsins. Tekjur Arnarins jukust um 13,9% milli ára og námu 1.790 milljónum króna. „Starfsemi á árinu gekk vonum framar oft á tíðum við erfiðar ytri aðstæður, tekjuaukningin var 219 milljónir sem dreifðist á allar deildir. Rekstrarkostnaður lækkar vegna lægri húsaleigukostnaðar því Bíldshöfðin var leigður burt,“ segir í skýrslu stjórnar. Rekstrarhagnaður (EBIT) reiðhjólaverslunarinnar jókst úr 85 milljónum í 97 milljónir króna. Ársverk voru 34, líkt og á fyrra ári. Eignir námu tæplega 1,2 milljörðum króna og eigið fé var um 971 milljón króna. Félagið var ekki með neinar langtímaskuldir. Snorri Ólafur Jónsson tók við sem framkvæmdarstjóri Arnarins árið 2024. Faðir hans, Jón Pétur Jónsson, er aðaleigandi reiðhjólaverslunarinnar. Jón Pétur Jónsson steig til hliðar sem framkvæmdastjóri Arnarins haustið 2024. © Styrmir Kári (Styrmir Kári)

Share this article