Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tíu íbúðir tilbúnar á Hvammstanga

  • What: News about new housing developments in Hvammstanga, Iceland.
  • Impact: Local residents and potential renters in the area.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.7.2026 | 10:35 Tíu íbúðir tilbúnar á Hvammstanga Tæplega 1.300 manns búa í Húnaþingi vestra og þar af um helmingur á Hvammstanga, sem hér sést. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Hér í sveitarfélaginu hefur verið tilfinnanleg þörf fyrir íbúðarhúsnæði og nú er henni að nokkru svarað,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Á Hvammstanga er nú tilbúið nýtt fjölbýlishús við Norðurbraut sem verktakafyrirtækið Búðingar sáu um að reisa fyrir Brák íbúðafélag. Nú þegar eru átta af þessum íbúðum komnar í leigu og fólk flutt inn. Í verkefni þessu og öðrum sambærilegum nýtur Brák stofnframlaga bæði frá ríki og sveitarfélagi á hverjum stað. Þannig myndast nauðsynlegur grunnur sem þarf til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, sem víða úti um land hefur verið skortur á. Þar hefur víða strandað á aðstæðum á markaði og kostnaði og því þarf að leysa málin með aðkomu opinberra aðila. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel víða um land. Húnaþing vestra var þriðja sveitarfélagið á landinu til að gera samkomulag við innviðaráðuneytið og HMS um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. „Samkomulagið var gert á grunni rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aðgerðir í húsnæðismálum frá árinu 2022. Sveitarstjórn sýndi með þessu skrefi framsýni og kjark en mörgum fannst vel í lagt að ráðast í byggingu á 10 íbúða húsi og töldu ekki þörf á því. Það hefur þó sýnt sig að full þörf var á,“ segir Unnur Valborg. Nýjasta nýtt við Norðurbraut og fólk er flutt á svæðið. Framkvæmdir við fjölbýlishúsið við Norðurbraut hófust í október á síðasta ári, svo að framkvæmdatíminn var afar skammur, en verkefnið gekk alveg eins og í sögu. Þá lauk nú á vordögum framkvæmdum við fimm íbúða raðhús við Lindarveg á Hvammstanga á vegum einkaaðila sem komnar eru í almenna sölu og útleigu. Því er óhætt að segja að staðan á íbúðamarkaði í byggðarlaginu sé allt önnur og betri en var. Hvergi nærri hætt Íbúar í Húnaþingi vestra eru í dag 1.280 og skiptast í því sem næst jafn stóra hópa milli þéttbýlis og dreifbýlis. Á Hvammstanga og í sveitunum í kring hefur verið talsverður stígandi í atvinnulífi, uppbygging er almenn og fólki heldur að fjölga. „Ferðaþjónustan hér um slóðir hefur sótt í sig veðrið og skapar drjúgan fjölda starfa, svo og þjónusta við sveitirnar hér í kring. Einnig eru í farvatninu nokkur spennandi atvinnuuppbyggingarverkefni, en ný sveitarstjórn hefur sett atvinnumálin í forgrunn. Hvað varðar vöxt og viðfang hafa húsnæðismálin verið ákveðin fyrirstaða sem við höfum mætt í bili en við erum vonandi hvergi nærri hætt. Íbúðirnar í húsinu við Norðurbraut voru leigðar fjölbreyttum hópi fólks, fjölskyldum héðan, fólki sem hefur flutt hingað norður vegna starfa og eins í einhverjum tilvikum ungu fólki sem er að flytja úr foreldrahúsum og byrja búskap,“ segir sveitarstjórinn. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tíu íbúðir tilbúnar á Hvammstanga Fjórir jafnir á toppnum eftir fyrsta dag Trump æfur vegna skógarelda: „Vísvitandi vanræksla“ Magnað myndskeið: Þyrla berst við eldinn í Drammen Netverslun með áfengi í boði ráðherra Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðvarandi vandamál í áratugi „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Hafnar orðum Þorgerðar Ljótt að feta í sama farveg Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búning Vill skoða endurgerð gatnamóta Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Einn stór turn í stað þriggja minni Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Áfram unnið að varanlegri lausn Hiti áfram yfir 20 stig Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Tíu íbúðir tilbúnar á Hvammstanga Fjórir jafnir á toppnum eftir fyrsta dag Trump æfur vegna skógarelda: „Vísvitandi vanræksla“ Magnað myndskeið: Þyrla berst við eldinn í Drammen Netverslun með áfengi í boði ráðherra Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðvarandi vandamál í áratugi Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Sparkvöllurinn rís ekki í bili Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búning Vill skoða endurgerð gatnamóta Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Einn stór turn í stað þriggja minni Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Áfram unnið að varanlegri lausn Hiti áfram yfir 20 stig Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article