Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Virðis­rýrnun lána í byggingar­starf­semi tvöfaldast

  • What: Mortgage values in Iceland have doubled in six months
  • Impact: Rising mortgage values reflect a challenging real estate market
Read Full Article →

Erfið staða á byggingar­markaði er farin að birtast í aukinni virðis­rýrnun útlána hjá Lands­bankanum, sem er einn stærsti lán­veitandi greinarinnar. Lilja Björk Einars­dóttir, banka­stjóri Lands­bankans, segir blikur á lofti í byggingar­starf­semi og telur erfitt að sjá að ástandið batni að ráði meðan vaxta­stig helst hátt. „Lands­bankinn er stór lán­veitandi á byggingar­markaði og þar eru blikur á lofti sem endur­speglast t.d. í aukinni virðis­rýrnun í upp­gjöri bankans. Það er erfitt að sjá að ástandið geti lagast fyrr en vextir lækka,“ segir Lilja í til­efni af hálfsárs­upp­gjöri bankans. Hún segir jafn­framt að til lengri tíma þurfi að huga að því að draga úr flóknum kvöðum og álögum sem auki kostnað við byggingu nýrra fast­eigna. Meira en tvöföldun á sex mánuðum Virðis­rýrnun vegna lána til fyrir­tækja í byggingar­starf­semi nam rúmum þremur milljörðum króna í lok júní, saman­borið við 1,5 milljarða um áramót. Hún hefur því aukist um tæp­lega 1,6 milljarða króna og meira en tvöfaldast á hálfu ári. Virðis­rýrnunin endur­speglar mat bankans á væntu útlána­tapi en felur ekki í sér að sam­svarandi endan­legt tap hafi þegar orðið. Af 252,8 milljarða króna lána­safni greinarinnar voru 220,5 milljarðar í áhættu­stigi 1 í lok júní. Útlán í áhættu­stigi 2 námu 22,9 milljörðum og útlán í áhættu­stigi 3 tæpum níu milljörðum króna. Lán í áhættu­stigi 3 höfðu aukist úr aðeins 752 milljónum króna um áramót í tæpa níu milljarða í lok júní. Þar er um að ræða útlán þar sem orðið hefur greiðslu­fall eða önnur merki um veru­lega skerðingu á útlánagæðum. Útlán í áhættu­stigi 2 jukust á sama tíma úr 18,5 milljörðum í 22,9 milljarða króna. Í þeim flokki eru lán þar sem útlánaáhætta hefur aukist veru­lega frá því að lánið var upp­haf­lega veitt, þótt lántakandinn þurfi ekki að vera kominn í van­skil. Lán til greinarinnar komin í 250 milljarða Bók­fært brúttóvirði útlána Lands­bankans til fyrir­tækja í byggingar­starf­semi nam 252,8 milljörðum króna í lok júní, saman­borið við 194,8 milljarða um áramót. Aukningin nam því um 58 milljörðum króna, eða tæp­lega 30%. Stór hluti aukningarinnar skýrist þó af breyttri flokkun. Útlán að fjár­hæð 31 milljarður króna, sem áður voru flokkuð sem lán til fast­eignafélaga, voru á tíma­bilinu færð undir byggingar­starf­semi. Endur­flokkunin hafði því engin áhrif á heildarútlán bankans. Að endur­flokkuninni frátalinni jókst staðan um 27 milljarða króna. Ný útlán námu um 13 milljörðum og nýting áður samþykktra lána­lína um 22 milljörðum, en um níu milljarðar voru greiddir upp. Útlán til fyrir­tækja í heild jukust um 3,8% á fyrri helmingi ársins og segir Lands­bankinn vöxtinn einkum hafa verið í lánum til byggingar­starf­semi. Skammtíma­van­skil aukast Fjár­hæð lána til byggingar­starf­semi sem voru í ein­hverjum van­skilum jókst einnig frá áramótum. Lán í van­skilum námu sam­tals um fjórum milljörðum króna í lok júní, saman­borið við tæp­lega 1,5 milljarða um áramót. Aukningin var að mestu í skammtíma­van­skilum. Lán sem voru í eins til fimm daga van­skilum jukust úr 952 milljónum í 2,3 milljarða króna og lán í sex til 30 daga van­skilum úr 313 milljónum í 1,5 milljarða. Lán í meira en 90 daga van­skilum námu hins vegar 135 milljónum króna og höfðu lækkað lítil­lega frá áramótum, þegar þau námu 145 milljónum. Þróunin bendir því ekki til mikillar aukningar á lang­varandi van­skilum enn sem komið er, þótt styttri van­skil hafi aukist tölu­vert. Veðstaðan al­mennt sögð góð Lands­bankinn segir veðstöðu útlána til byggingar­starf­semi al­mennt góða og að hún sé metin út frá kostnaðar­verði fast­eignanna. Um 65% lána­safnsins var með veðhlut­fall undir 75% í lok júní. Þar af var tæpur fjórðungur með veðhlut­fall undir 50% og 40% með veðhlut­fall á bilinu 50–75%. Um 3,1% útlánanna voru með veðhlut­fall yfir 100% og 0,2% án trygginga. Hlut­fall lána með veðhlut­fall yfir 100% hafði lækkað frá 4,7% um áramót. Stærsti hluti veðanna var vegna íbúðar­húsnæðis í byggingu. Slík veð námu 143 milljörðum króna, saman­borið við 108 milljarða um áramót. Veð í full­búnu at­vinnu­húsnæði námu 41 milljarði og í at­vinnu­húsnæði í byggingu 26 milljörðum króna.

Share this article