Reykjanesbær hefur gengið frá kaupum á um 48 þúsund fermetra lóð og mannvirkjum sem nú er verið að rífa á gamla kísilverssvæðinu í Helguvík. Um er að ræða hluta af lóð gamla kísilvers United Silicon. Kaupverðið nemur 1.250 milljónum króna. Bæjaryfirvöld segja vaxandi áhuga fyrirtækja og fjárfesta á uppbyggingu á svæðinu og hafa þegar átt samtöl við áhugasama aðila. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um hvaða starfsemi verður á svæðinu og viðræðurnar eru enn á frumstigi. „Það er mikill áhugi á þessu svæði, eins og raunar Reykjanesbæ öllum um þessar mundir. Við finnum greinilega fyrir vaxandi áhuga fyrirtækja og fjárfesta sem sjá tækifæri til uppbyggingar hér,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Kaupin ná til Stakksbrautar 9C og þriggja fasteignahluta sem eru samtals rúmlega 2.560 fermetrar að stærð. Heildarfasteignamat eignanna er 419,1 milljón króna en kaupverðið 1,25 milljarðar. Stefnt er að því að skipta svæðinu upp í fleiri en eina lóð og er skipulagsvinna vegna þess að fara af stað. Við þá vinnu verður meðal annars horft til þess hvers konar lóðir og lóðastærðir henti þeim fyrirtækjum sem sýnt hafa áhuga. Gatnagerð í kringum svæðið er að sögn bæjarstjórnar langt á veg komin og áhersla verður lögð á að skipulagsvinnan gangi hratt fyrir sig svo uppbygging geti hafist sem fyrst. Tæplega 56 þúsund fermetra lóð til sölu Reykjanes Investment, sem keypti gamla kísilverssvæðið af dótturfélagi Arion banka á síðasta ári, kynnir einnig mögulega framtíðaruppbyggingu á þeim hluta svæðisins sem ekki er hluti af kaupum Reykjanesbæjar. Sjá einnig Arion selur kísilverið í Helguvík Á vef félagsins er Helguvíkursvæðið í heild kynnt sem um 110 þúsund fermetra eignarlóð með um 16 þúsund fermetra atvinnuhúsnæði. Þar er meðal annars tæplega 55,7 þúsund fermetra eignarlóð auglýst til sölu. Samkvæmt kynningu Reykjanes Investment fylgir lóðinni byggingarréttur fyrir allt að 44,8 þúsund fermetra húsnæði. Þegar eru tæplega 10 þúsund fermetrar byggðir á lóðinni og segir félagið að stærð hennar bjóði upp á skiptingu í 5-10 þúsund fermetra lóðir. Kvaðir eru um hafnsækna starfsemi og nefnir félagið meðal annars frystigeymslur, matvælavinnslu, lager og tollsvæði sem mögulega starfsemi. Reykjanes Investment hefur jafnframt birt sviðsmyndir sem sýna umfangsmikla uppbyggingu atvinnuhúsnæðis á svæðinu. Myndband sem sýnir teikningar frá félaginu má finna neðst í fréttinni. „Teikningar Reykjanes Investment eru hluti af frumathugunarvinnu sem unnin hefur verið til að draga fram möguleika svæðisins og þau fjölmörgu tækifæri sem þar eru til uppbyggingar,“ segir í skriflegu svari bæjarstjórnar. Á svæðinu eru einnig umfangsmiklir raforkuinnviðir frá fyrri starfsemi. Reykjanes Investment auglýsir meðal annars aðveitustöð við Stakksbraut 9b til sölu og í kynningu félagsins er bent á nálægð við 132 kV dreifistöð Landsnets. Þar kemur einnig fram að 33 kV tenging inn á svæðið hafi áður verið nýtt fyrir um 40 MW.