Botnlið Þórs vann 2-1 sigur gegn toppliði Víkinga í Bestu deild karla í fótbolta. Þetta var fyrsti leikur Arons Einars Gunnarssonar fyrir Þór í efstu deild. Víkingur tapaði síðast í deildarkeppni fyrir 342 dögum, gegn Stjörnunni 2-4 10. ágúst 2025. Liðið hafði unnið 13 af 14 leikjum sínum hingað til og gert eitt jafntefli. Þá höfðu Víkingar bara fengið 9 mörk á sig en þau eru nú 11. Þeir eru þó enn langefstir, með 40 stig gegn 32 stigum KR sem getur saxað á forskotið er liðið mætir Stjörnunni í Vesturbænum. Þór er þó enn í botnsætinu en jafnar FH að stigum. Bæði lið eru með 11 stig en Þór er með lakari markatöflu. Endurkoma Arons Leikurinn var fyrsti leikur Arons Einars Gunnarssonar, fyrrum landsliðsfyrirliða, með uppeldisfélaginu eftir að hann gekk til liðs við það á nýjan leik í vikunni. Um er að ræða fyrsta leik Arons í efstu deild á Íslandi en Þórsarar voru í næstefstu deild þegar hann lék með þeim í upphafi ferilsins og þegar hann spilaði nokkra leiki með liðinu 2024. Gangur leiksins Þórsarar komust yfir á 82. mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson átti skot að marki Víkinga en boltinn fór af Gunnari Vatnhamar varnarmanni Víkinga og í netið. Skömmu síðar fengu Þórsarar aðra hornspyrnu en að þessu sinni rataði boltinn á kollinn á Gyrði Hrafni Guðbrandssyni. Gyrðir var að spila sinn fyrsta leik fyrir Þór eftir að hafa komið á láni frá KR. Strax í kjölfarið svöruðu Íslandsmeistararnir hins vegar með góðu skallamarki frá Daða Berg Jónssyni og lokamínúturnar urðu æsispennandi. Mörkin urðu ekki fleiri og botnlið Þórs varð þar með fyrsta liðið til að vinna topplið Víkinga í deildinni þetta tímabilið.