Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aron Einar mættur aftur heim

Read Full Article →

Fótboltamaðurinn og fyrrum landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hefur samið við uppeldisfélagið Þór á Akureyri um að leika með liðinu út tímabilið. Þór er sem stendur í botnsæti Bestu deildarinnar. Aron Einar er mættur í Þórsbúninginn á nýjan leikInstagram / Þór Akureyri Samningur Arons hjá Al-Gharafa í Katar rann út fyrr í sumar og nú ljóst að hann mun taka slaginn með Þórsurum. Hann gerði slíkt hið sama fyrir tveimur árum en þá var liðið í næstefstu deild. Aron hóf meistaraflokksferilinn hjá Þór 2005 í næstefstu deild svo Aron gæti spilað sinn fyrsta leik í efstu deild á Íslandi þegar Þór tekur á móti toppliði Víkings á morgun. Aron hefur spilað 110 landsleiki og skorað í þeim fimm mörk.

Share this article