Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.7.2026 | 10:15 Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Tóm Laugardalslaug í heimsfaraldri 2020 en lengur hefur stúkan staðið tóm. Ekki rýrir það menningarsögulegt gildi hennar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta mannvirki hefur ekki enn náð þeim aldri að falla undir verndarákvæði laga um menningarminjar þannig að það er ekki sjálfkrafa friðað,“ segir Þór Ingólfsson Hjaltalín, sviðsstjóri minjavarðasviðs Minjastofnunar Íslands, í samtali við Morgunblaðið um áhorfendastúkuna við Laugardalslaug sem Einar Sveinsson arkitekt teiknaði á sínum tíma ásamt lauginni upp úr miðri síðustu öld. Frétt af mbl.is Samkeppni verði haldin um stúkuna Eitt kennileita Reykjavíkur Eins og fjallað hefur verið um hér í blaðinu, meðal annars í gær, eru vangaveltur nú uppi um framtíð stúkunnar, sem kalla má eitt kennileita höfuðborgarinnar, og sagði Dennis Davíð Jóhannesson arkitekt, sem rekur stofu ásamt Hjördísi Sigurgísladóttur eiginkonu sinni, í blaði gærdagsins að Minjastofnun ætti að skyndifriða stúkuna – það væri eina færa leiðin á þessu stigi málsins. Þór segir mannvirki á borð við stúkuna oft og tíðum hafa mjög hátt varðveislugildi, „og við lítum auðvitað svo á að stúkan í Laugardal hafi mikið menningarsögulegt gildi. Sömuleiðis hefur hún mikið umhverfisgildi sem kennileiti í borgarlandslaginu, í og við útivistarsvæðið í Laugardal, og að lokum er hún mjög sérstök frá sjónarhóli byggingarlistar og vitnisburður um tíðaranda sjöunda áratugarins,“ segir sviðsstjórinn. Staðan núna sé sú að Minjastofnun þurfi frekari gögn. „Við höfum óskað eftir fundi með Reykjavíkurborg til að fara yfir þau gögn sem liggja fyrir. Eitt af því sem þyrfti að gera núna fljótlega er að vinna húsakönnun fyrir þetta mannvirki,“ segir Þór. Hvað felst í slíkri könnun? „Hún felur í sér varðveislumat og mat á því hvaða gildi mannvirkið hefur umhverfislega, í þessu tilfelli í svipmóti Laugardalsins, og menningarsögulegu og byggingarlegu gildi stúkunnar. Þessi gögn þurfa að liggja fyrir og þeirra þarf að afla,“ svarar viðmælandi. Frétt af mbl.is Mun rýna allar tillögur af yfirvegun Friðlýsing og 1923-regla Aðspurður segir hann Minjastofnun þegar tekna að íhuga örlög stúkunnar og laugarinnar og einhver gögn hafi borist henni, meðal annars um ástand mannvirkja á svæðinu. „Umræða um þau hefur mér vitanlega ekki farið fram og þess vegna erum við að óska eftir þessum fundi núna með borginni. Þetta mannvirki er mjög hátt metið og við höfum þetta tæki, að geta lagt til, og þá við ráðherra, að hann friðlýsi,“ segir Þór. Tekur hann það fram að þetta úrræði stofnunarinnar eigi við um yngri byggingar og mannvirki en þau sem sjálfkrafa eru friðuð samkvæmt lögum en það eru byggingar sem reistar eru árið 1923 og fyrr – segir Þór aðspurður að undir þá friðunarreglu falli vel á annan tug þúsunda fasteigna á landinu. Í umræðu eftir setningu laga um menningarminjar hafi verið ákveðið að miða við eitt ártal frekar en aldur húsa og hlaupandi ártal. Frétt af mbl.is Sundlaugagarður í Laugardalnum Friðlýst hús og mannvirki segir hann njóta umfangsmeiri verndar en þau sem sjálfkrafa hljóti friðun samkvæmt 1923-reglunni. „Sé hús eða mannvirki friðlýst er hægt að setja alls konar skilmála í friðlýsinguna sem getur verið allt mögulegt. Þar með höfum við það dálítið í hendi okkar hvernig við stöndum að friðlýsingunni. Varðandi hús sem fá sjálfkrafa friðun vegna aldurs gildir í raun bara sú regla að ekkert megi hrófla við þeim án samþykkis Minjastofnunar,“ útskýrir Þór. Eðli málsins samkvæmt eru friðlýst hús og byggingar ekki nema brotabrot af fjölda þeirra sem sjálfkrafa teljast friðuð. „Það eru oft opinberar byggingar eða hús sem teljast hluti af íslenskri byggingararfleifð,“ útskýrir Þór og nefnir umbeðinn deilur um Sundhöll Keflavíkur sem Guðjón Samúelsson húsameistari teiknaði og skiptar skoðanir um breytingar á húsnæði Sundhallarinnar í Reykjavík. Og nú rísa umræður um þriðju sundlaugina og aðstöðu við hana. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Jetten neitar tali um undanþágur Facebook lá niðri í morgun Tekist að slökkva eld í byggð en ekki í skóginum „Það býr villidýr í öllum veiðikonum“ Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljótt að feta í sama farveg Ekki í mínum villtustu draumum Hafnar orðum Þorgerðar Viðartittlingur kallar á nefndarálit Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Vilja sameina fólk í sköpun og gleði Hafnar orðum Þorgerðar Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Jetten neitar tali um undanþágur Facebook lá niðri í morgun Tekist að slökkva eld í byggð en ekki í skóginum „Það býr villidýr í öllum veiðikonum“ Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki hægt að breyta skráningunni Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Jetten neitar tali um undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Vilja sameina fólk í sköpun og gleði Hafnar orðum Þorgerðar Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir

Share this article