Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eitt merkasta mannvirki borgarinnar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.7.2026 | 14:20 Eitt merkasta mannvirki borgarinnar Framtíð Laugardalslaugar er mörgum greinilega tilfinningamál. Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Orri Árnason, arkitekt hjá Zeppelin arkitektum, segir stúkuna við Laugardalslaug merkilegt mannvirki sem full ástæða sé til að endurgera og finna nýtt hlutverk. Tilefnið er annars vegar fréttir af fyrirhuguðu niðurrifi á hluta stúkunnar, vegna alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki, og hins vegar hugmyndir um að rífa stúkuna og reisa í hennar stað hótel við laugina. Fjallað var um hugmynd Björns Leifssonar, stofnanda World Class, um hótel, tengdan sundlaugagarð og önnur ný mannvirki við laugina í Morgunblaðinu á laugardag. Hún var borin undir Hildi Björnsdóttur borgarstjóra hér í blaðinu í fyrradag sem sagði að rýna þyrfti allar tillögur af yfirvegun, nú þegar taka þyrfti „þá erfiðu ákvörðun að rífa stúkuna við Laugardalslaug eftir áralangt viðhaldsleysi“. Frétt af mbl.is Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Saknar umræðu arkitekta Orri segir mikla umræðu hafa skapast um stúkuna og tillögu Björns en saknar umræðu arkitekta. „Ég er einn af þeim sem telja að stúkan, jafnvel þótt um fegurð hennar megi deila, sé eitt af merkustu mannvirkjum Reykjavíkur, bæði hvað arkitektúr og verkfræði snertir, en sé ekki síst til marks um stórhug Reykvíkinga á þeim tíma sem hún var byggð. Nú má stúkan muna sinn fífil fegri og til stendur að rífa hana. Stúkan var teiknuð á teiknistofu húsameistara Reykjavíkur undir stjórn Einars Sveinssonar, eins merkasta arkitekts þjóðarinnar, sem meðal annars teiknaði Laugarnes- og Melaskóla og Borgarspítalann. Horft til norðurs að endurgerðri stúkunni. Rennibrautin er á sínum stað en nýtt hús á bak við hana. Í kringum 2010 átti ég það til að synda í lauginni og man hvað mér leið alltaf vel í sálinni þegar ég horfði upp í stúkuna og sérstaklega þegar hún var böðuð sólskini, en mér sárnaði hvað hún var farin að láta á sjá. Ég gerði mér grein fyrir því að ósennilegt væri að hún yrði gerð upp, því bæði væri það mjög dýrt og eins einsýnt að hún yrði lítið notuð. Ég hugsaði að það mætti breyta henni og finna henni nýtt hlutverk, rétt eins og þegar spænski arkitektinn Ricardo Bofill breytti gamalli sementsverksmiðju í heimili sitt og teiknistofu, sem er heimsfrægt. Ég fékk til liðs við stofuna Emil Emilsson viðskiptafræðing og Auðun Ingvarsson verkfræðing og við smíðuðum ramma um nýja notkun og viðbætur og gerðum tillögu sem við kynntum fyrir borginni árið 2013 en málið fékk engar undirtektir. Þrettán árum síðar er svo komið að ákveðið hefur verið að rífa stúkuna, þetta glæsilega mannvirki og merka kennileiti. Hugmynd okkar gekk út á það að hola stúkuna að innan og vera þar með glæsilega sali tengda hótelrekstri, t.d. setustofur, borðsali eða veitingastaði, en þá voru ekki eins mörg hótel í Reykjavík og í dag. Frá stúkunni yrði því áfram mikið útsýni yfir laugina og reyndar gerðum við ráð fyrir nokkrum þrepum hennar utan við salinn, þar sem áfram mætti setjast niður og horfa yfir laugina,“ segir Orri. Frétt af mbl.is Samkeppni verði haldin um stúkuna Vindbrjótur og hótel „Fyrir austurenda laugarinnar ráðgerðum við hótelherbergjaálmu og stoðrými á jarðhæð, eða skrifstofur. Við töldum að hafa þyrfti einhvern rekstur tengdan stúkunni til að tryggja sjálfbæra notkun stúkunnar. Annar ávinningur við álmuna væri að hún myndaði skjól fyrir austlægum áttum, en mér fannst alltaf vanta mikið upp á skjólið við laugina. Við sáum einnig fram á að hóteli gæti fylgt aukin þjónusta fyrir íbúa næsta nágrennis og að möguleg samvinna við World Class myndi gefa mikla möguleika á samnýtingu rýma. Reyndar má vel sjá fyrir sér ýmsa aðra starfsemi innan þessa ramma og sjálfsagt má gefa henni annað form, en það er önnur saga,“ segir Orri en Reykjavíkurborg hafi leynt og ljóst stefnt að því í langan tíma að rífa stúkuna. Stúkan endurgerð og nýbygging hægra megin við hana. Þakið á innilauginni og Laugum er í forgrunni. „Okkur fannst við því hafa slegið nokkrar flugur í einu höggi og það voru mikil vonbrigði að Reykjavík vildi hvorki hafa nokkuð með tillöguna að gera né finna stúkunni nýtt hlutverk. Stúkunni hefur ekkert verið sinnt í áratugi og maður getur ekki ályktað annað en að borgin hafi leynt og ljóst stefnt að því í langan tíma að rífa hana,“ segir Orri sem hvetur nýjan meirihluta til að skoða málið vel en honum líst vel á hugmyndir um sundlaugagarð. Útsýni Horft yfir Laugardalslaug úr endurgerðri stúkunni. Hægra megin hefur verið teiknuð nýbygging. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eitt merkasta mannvirki borgarinnar Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Kinnaliturinn sem verður að taka með í fríið Ísland lenti í 13. sæti Smekkfullt á öllum tjaldsvæðum Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Hafnar orðum Þorgerðar Viðartittlingur kallar á nefndarálit Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Bjarni kallar eftir útskýringu Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Jetten neitar tali um undanþágur Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Eitt merkasta mannvirki borgarinnar Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Kinnaliturinn sem verður að taka með í fríið Ísland lenti í 13. sæti Smekkfullt á öllum tjaldsvæðum Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Ekki hægt að breyta skráningunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Jetten neitar tali um undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Bjarni kallar eftir útskýringu Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Jetten neitar tali um undanþágur Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir

Share this article