Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrrverandi forstjóri Landsnets í stjórn Njarðar

Read Full Article →

Guðmundur Ingi Ásmundsson, sem gegndi starfi forstjóra Landsnet í rúman áratug, hefur tekið sæti í stjórn Njarðar Holding ehf. Guðmundur Ingi býr yfir rúmlega fjögurra áratuga reynslu af íslenskum orkumálum. Hann hóf störf hjá Landsvirkjun árið 1982 og kom að stofnun Landsnets árið 2005. Þar gegndi hann meðal annars störfum kerfisstjóra, framkvæmdastjóra kerfisstjórnar og aðstoðarforstjóra áður en hann tók við starfi forstjóra árið 2015. Hann lét af störfum hjá félaginu sumarið 2025. „Það er okkur mikill fengur að fá Guðmund Inga til liðs við stjórn Njarðar. Hann býr yfir víðtækri reynslu og einstakri þekkingu á íslenska raforkukerfinu og uppbyggingu þeirra innviða sem íslenskur iðnaður byggir á. Sú reynsla verður okkur afar verðmæt á næstu stigum félagsins,“ segir Friðrik Steinn Kristjánsson, stjórnarformaður Njarðar. Njörður byggir upp nýja magnesíumframleiðslu á Íslandi þar sem magnesíum verður unnið úr sjó með endurnýjanlegri orku og án beinnar losunar koltvísýrings frá framleiðsluferlinu. Undirbúningur prufuframleiðslu félagsins stendur nú sem hæst, samhliða áframhaldandi uppbyggingu fyrirhugaðrar verksmiðju á Grundartanga. „Njörður vinnur að metnaðarfullu iðnaðarverkefni þar sem orka og öflugir innviðir gegna lykilhlutverki. Ég hlakka til að vinna með stjórn og starfsfólki félagsins að þeim verkefnum sem fram undan eru,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson.

Share this article