Innlent | Morgunblaðið | 20.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Landið fýkur enn burt Auður Elva Kjartansdóttir. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Veðurstofa Íslands minnir okkur á að baráttunni við landeyðingu er hvergi nærri lokið. „Veðrið var þurt en heldr hvast … mikið moldryk hófst frá inu hreinsaða svæði … holtið, er eins og kunngt er heitir Öskjuhlíð, mætti með fult eins miklum rétti bera nafnið Öskuhlíð.“ (Víkverji, 4. ágúst 1874). Þannig var lýst þjóðhátíðarhöldunum í Öskjuhlíð árið 1874 þegar Kristján IX. Danakonungur kom til Íslands með stjórnarskrána. Þessi stóri dagur í sögu þjóðarinnar varð líka eftirminnilegur fyrir moldrokið sem lagði yfir hátíðarsvæðið. Það væri auðvelt að halda að þetta sé bara saga úr fortíðinni. En svo er ekki. Veðurstofa Íslands fjallaði nýlega um jarðvegsfok á Íslandi í alþjóðlegu samhengi. Þar kemur fram að Ísland sé enn meðal þeirra landa þar sem jarðvegsfok er hvað mest. Það er umhugsunarvert. Við höfum náð miklum árangri í landgræðslu og skógrækt en samt er landið enn að fjúka burt á mörgum stöðum. Um síðustu helgi ók ég um landið og varð sjálf vör við moldrok. Þá rifjaðist upp fyrir mér lag Ríó Tríós: „Landið fýkur burt.“ Lagið er orðið gamalt en boðskapurinn á enn við. Kannski er munurinn sá að í dag tölum við ekki lengur mikið um þetta. Þegar ég lærði jarðvegsfræði í háskólanum sat ein setning sérstaklega eftir hjá mér. Okkur var kennt að stór hluti Íslands bæri einkenni kaldrar eyðimerkur. En svona leit Ísland ekki út þegar landnemarnir settust hér að. Á öldum saman höfum við gengið of nærri landinu og víða sér þess enn merki. Það er engin tilviljun að Landgræðsluskóli Sameinuðu þjóðanna varð til á Íslandi. Fáar þjóðir hafa jafn sára reynslu af landeyðingu og Íslendingar og um leið höfum við byggt upp þekkingu sem aðrar þjóðir hafa komið hingað til að læra af. Sem betur fer höfum við líka sýnt að það er hægt að snúa þróuninni við. Það er ekki svo langt síðan ástandið í kringum höfuðborgina var mun verra en það er í dag. Með markvissri landgræðslu og skógrækt hefur tekist að gjörbreyta svæðum eins og Heiðmörk og Öskjuhlíð. Það er árangur sem við eigum að vera stolt af. En verkefninu er ekki lokið. Það þarf ekki að fara langt út fyrir þéttbýlið til að sjá rofabörð. Þegar við sjáum rofabörð eigum við að muna að þar er landeyðing í gangi. Þar er jarðvegur að tapast. Þar eru verðmæti að fjúka burt. Við vitum hvað virkar. Nú þurfum við einfaldlega að halda áfram. Mér finnst líka mikilvægt að við kennum börnunum okkar að þykja vænt um landið. Tökum þau með út, leyfum þeim að planta tré og fylgjast með því vaxa. Leyfum þeim að sjá hvernig land getur gróið aftur ef því er gefið tækifæri. Þá læra þau að náttúran er ekki sjálfsögð heldur eitthvað sem við berum öll ábyrgð á. Auður Elva Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tíu særðir í árásum Úkraínumanna á Moskvu Myndskeið: Tilfinningarnar báru Messi ofurliði Grófur sveitastíll við Álftavatn Aðsend grein: Landið fýkur enn burt Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bregðast við ummælum Þorgerðar Ljótt að feta í sama farveg „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Mest lesið Í gær Í vikunni Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Hefði aldrei verið samþykkt í dag Bregðast við ummælum Þorgerðar Mótmæltu veginum um árabil Ég var kölluð tjaldakonan Aldagömul mynt fannst í Höfnum Myndaði fyrstu loga Drammen-hamfaranna Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás Bjarni kallar eftir útskýringu Leita að manneskju sem féll í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Nýjast á mbl.is » Tíu særðir í árásum Úkraínumanna á Moskvu Myndskeið: Tilfinningarnar báru Messi ofurliði Grófur sveitastíll við Álftavatn Aðsend grein: Landið fýkur enn burt Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Vilja sameina fólk í sköpun og gleði Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Bregðast við ummælum Þorgerðar Mest lesið Í gær Í vikunni Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Hefði aldrei verið samþykkt í dag Bregðast við ummælum Þorgerðar Mótmæltu veginum um árabil Ég var kölluð tjaldakonan Aldagömul mynt fannst í Höfnum Myndaði fyrstu loga Drammen-hamfaranna Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás Bjarni kallar eftir útskýringu Leita að manneskju sem féll í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal