Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Hafa náð tökum á víðfeðmum skógareldum í Suður-Frakklandi

  • What: Wildfires under control in southern France
  • Impact: Over 400 people evacuated
Read Full Article →

Slökkviflugvél að störfum í Frakklandi, fyrr í mánuðinum.EPA / GAUTHIER BEDRIGNANS Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á víðfeðmum skógareldum sem hafa logað í Suður-Frakklandi frá því fyrr í vikunni. Í það minnsta 400 þurftu að yfirgefa heimili sín í Var-sýslu vegna eldsins sem breiddist hraðar út en búist var við. Sýslan er suðaustarlega í landinu og liggur að Miðjarðarhafinu. Yfir 600 slökkviliðsmenn hafa barist við eldana og slökkviflugvélar og -þyrlur voru nýttar við slökkvistörfin. Gróður hefur verið mjög þurr á þessum slóðum eftir mikinn hita og þurrk sem skapar kjöraðstæður fyrir gróður- og skógarelda.

Share this article