Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

12 þúsund hafa þurft að flýja skógarelda í suðvesturhluta Frakklands

  • What: Wildfires force 12,000 people to evacuate in southwest France
  • Impact: Residents in the region
Read Full Article →

Gróðureldar hafa skilið eftir sig sviðna jörð í Frakklandi á síðustu vikum.EPA / SEBASTIEN NOGIER Í kringum tólf þúsund manns hafa þurft að flýja skógarelda sem loga í suðvesturhluta Frakklands. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir staðaryfirvöldum. Í morgun voru sjö þúsund manns flutt á brott úr íbúðahverfi og af sex tjaldsvæðum norðan við Cap Ferret. Það er vinsæll áfangastaður ferðamanna á vesturströnd Frakklands, skammt frá Bordeaux. 20 þúsund hektarar, eða 200 ferkílómetrar, hafa brunnið í eldunum sem loga í suðvesturhluta landsins.

Share this article