Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins var myndaður í lok maí en Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri í byrjun júní. Hildur var sjálf í stjórnarandstöðu í átta ár, þar af sem oddviti Sjálfstæðisflokksins síðastliðin fjögur ár. Að hennar sögn getur það að vera í minnihluta verið ergileg staða, þar sem góðar hugmyndir og lausnir hljóta oft ekki framgang. Nú sé tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif. „Það er kostur í minni stöðu að hafa þessa reynslu að baki. Ég kem inn í þetta með nokkuð fullmótaða hugmynd um hvað mér finnst við eiga að gera og hvað er raunhæft að gera, þannig að við getum gengið nokkuð rösklega til verks,“ segir Hildur. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift